Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Jón Þór Stefánsson skrifar 22. júlí 2026 14:05 Ari var eftirlýstur og handtekinn á Kýpur. Getty/lögreglan á Kýpur Íslendingurinn Ari Sigurðsson var eftirlýstur af lögreglunni í Larnaka á Kýpur á dögunum og var í kjölfarið handtekinn.
Í byrjun síðustu viku sögðu kýpverskir fjölmiðlar frá eftirlýsingunni. Fram kom að Ari væri 53 ára Íslendingur, búsettur í Larnaka. Hann væri talinn geta hjálpað lögreglunni þar í landi við rannsókn alvarlegum refisverðum brotum, sem þó voru ótilgreind. Síðastliðinn föstudag sagði lögreglan svo frá því að lögreglunni á Kýpur hafi tekist að finna Ara og handtaka hann. Hefur hlotið dóm á Íslandi Ari hlaut þriggja ára og níu mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2022 fyrir kynferðisbrot, stórfelldar ærumeiðingar og stórfelld brot í nánu sambandi sem beindust gegn einni og sömu konunni. DV fjallaði um málið á sínum tíma, þar sem hann var kallaður „Ari eltihrellir“, en svo virðist sem dómurinn sé ekki lengur aðgengilegur á vef dómstólanna. Í umfjöllun DV kom fram að dómurinn yfir honum teldi rúmlega sextíu blaðsíður og að hann hafi verið sakfelldur í 136 liðum. Umrædd brot framdi hann á árunum 2017 til 2019, en honum var gefið að sök að senda á annað hundrað tölvupósta með kynferðislegum ljósmyndum af konunni til vina og kunningja hennar, sem og á fjölmiðla og víðar. Jafnframt mun hann hafa birt kynferðisleg myndskeið af henni á vefsíðum, og sent henni ærumeiðandi skilaboð.
Íslendingar erlendis Erlend sakamál Kýpur Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla eldislaxi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Sjá meira