„Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 22. júlí 2026 12:30 Einar segir Héraðsdóm Reykjanes setja furðulegt fordæmi. vísir/vilhelm Lögmaður dóttur konu sem lést í umsjá Skúla Tómasar Gunnlaugssonar læknis segir héraðsdóm setja varhugavert fordæmi með því að vísa máli læknisins frá. Skúli var ákærður fyrir manndráp en lögmaðurinn segir niðurstöðuna brjóta gegn Mannréttindasáttmála Evrópu.
Héraðsdómur Reykjanes vísaði í gær frá máli gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni hjartalækni sem var ákærður fyrir manndráp af ásetningi og broti gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Frávísunin byggist á því að Skúla hafi þegar verið refsað en hann var sviptur lækningaleyfi árið 2021. Samkvæmt meginreglum réttarfars og dómafordæmi Mannréttindadómstóls Evrópu er ekki tækt að refsa manni tvisvar fyrir sama brot. Sex andlát sem urðu á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja undir meðferð Skúla voru rannsökuð af lögreglu, rannsókn var felld niður í fimm þeirra en hann var ákærður vegna gruns um að hafa banað sjúklingi að nafni Dana Jóhannsdóttir. Einar Gautur Steingrímsson, lögmaður dóttur Dönu, segir niðurstöðuna þýða að íslenska ríkið upfylli ekki skyldur sínar. „Fyrst að landlæknir svipti lækninn starfsleyfi áður en formleg rannsókn hófst, þá má ekki ákæra í þessu máli. Þannig að ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann fyrir manndráp ef að landlæknir væri búinn að svipta hann starfsleyfi. Þannig að þetta er allt of langt gengið.“ Eva Hauksdóttir lögmaður er dóttir Dönu Jóhansdóttur,vísir/ívar fannar Hann segir úrskurðinn skapa varhugavert fordæmi og telur óhjákvæmilegt að niðurstaðan verði kærð til æðra dómstigs. „Fyrst að héraðssaksóknara ákvað að ákæra fólst í ákvörðuninni það mat héraðssaksóknara að það væri líklegt að hann yrði sakfelldur. Hann má ekki kæra nema hann telji sakfellingu líklega og það var hans mat að það lægi svo mikið fyrir. Nú fá dómstólar samkvæmt þessum úrskurði ekki að dæma um hvort það sé rétt af því að hann missti vinnuna með þessum hætti.“ Það sé með engu móti hægt að leggja sviptingu starfsleyfis til jafns við refsingu dómstóla að hans mati. „Þeir geta ekki búið við það að landlæknir geti tekið svona fram fyrir hendurnar á þeim enda lítur Landlæknir ekki á það sem sitt hlutverk að úthluta refsingu. Landlæknir telur sitt hlutverk vera að tryggja öryggi sjúklinga almennt á spítölum, en ekki að refsa. Maðurinn gengur laus allra mála ef þetta verður niðurstaðan líka á æðra dómstigi. En íslenska ríkið verður náttúrulega saksótt hjá Mannréttindadómstóli Evrópu fyrir tiltækið, því þetta er brot. Þessi niðurstaða yrði brot gegn annarri grein Mannréttindasáttmála Evrópu um að ríkinu sé skylt að vernda líf fólks. Ef að þetta er niðurstaðan þá er íslenska ríkið að bregðast þeirri skyldu,“ segir hann og heldur áfram: „Afleiðingarnar eru mjög alvarlegar ef þessi úrskurður fær að standa. Alvarlegar fyrir samfélagið, réttarkerfið, réttarvitund fólks og það er ekki hægt að búa við svona niðurstöðu.“
Læknamistök á HSS Dómsmál Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira