Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Árni Sæberg skrifar 22. júlí 2026 11:33 Hallgrímur Helgason og Ragnar Freyr Ingvarsson eru meðal þeirra sem óska Skúla Tómasi til hamingju. Vísir Fólk hefur keppst við að ausa Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hamingjuóskum en hann greindi í gær frá því að ákæru á hendur honum fyrir manndráp hefði verið vísað frá dómi.
Héraðsdómur Reykjaness vísaði í gærmorgun frá máli Héraðssaksóknara á hendur Skúla Tómasi, sem var ákærður fyrir manndráp og brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Héraðsdómur taldi Skúla Tómas þegar hafa verið refsað vegna málsins þegar landlæknir svipti hann lækningaleyfi árið 2021. „Kæru vinir. Í morgun var ákæru á hendur mér vísað frá dómi. Niðurstaða dagsins er mikill léttir. Hvert sem framhald málsins verður treysti ég því að niðurstaðan verði mér í hag og kvíði henni alls ekki. Við erum með sannleikann að vopni og hann mun á endanum sigra eins og ég hef ávallt haldið fram en ekki mátt segja frá vegna þagnarskyldu,“ sagði í færslu Skúla Tómasar á Facebook í gær. 250 athugasemdir Frá því að Skúli Tómas birti færslu sína í gær hefur mikill fjöldi fólks óskað honum til hamingju með niðurstöðu héraðsdóms. Þegar þessi frétt er skrifuð eru athugasemdir við færsluna orðnar um 250 talsins. Meðal þeirra sem rita athugasemd og óska Skúla Tómasi til hamingju með lyktir málsins er fjöldi þekktra heilbrigðisstarfsmanna og lækna. Þannig fagna til að mynda læknarnir Theódór Skúli Sigurðsson, Júlíus Valsson, Ragnar Freyr Ingvarsson, Gizur Gottskálksson og Páll Matthíasson. Sá síðastnefndi var forstjóri Landspítalans á þeim tíma sem mál Skúla Tómasar kom upp. Þá var Skúli Tómas starfsmaður Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Fleiri þekktir einstaklingar óska Skúla Tómasi til hamingju með niðurstöðuna en þeirra á meðal eru Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, Kristín Þorsteinsdóttir, fyrrverandi ristjóri Fréttablaðsins, og Ólafur Ísleifsson, fyrrverandi alþingismaður. Þá eru fjölmargir tengdir menningarheiminum sem óska Skúla Tómasi til hamingju en hann er einn stórtækasti listaverkasafnari landsins. Þeirra á meðal eru Jón Óskar myndlistamaður, Hallgrímur Helgason, rithöfundur og myndlistamaður, Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri og kollegi hans Friðrik Þór Friðriksson. Býst við „landhreinsun“ Skúli Tómas tjáir sig nánar um málið í svari við nokkrum athugasemdum. Þar segir hann meðal annars að hin látna hafi fengið viðeigandi meðferð að mati allra þeirra tuga heilbrigðisstarfsmanna sem komu að meðferð hennar á sínum tíma. „Illþýði hefur róið undir í þessu máli frá upphafi. Sú saga er ósögð. Hætt er við að það fólk verði ansi svekkt á sjálfu sér áður en yfir lýkur. Sennilega flýr það land. Það yrði þá kallað landhreinsun.“ Þá segir hann að málið hafi verið „vanhugsað strax frá upphafi“ og rannsókn þess hafi verið glórulaus og hvorki byggð á frumheimildum, gagnreyndri læknisfræði eða framburði vitna. „Þetta er flókin læknisfræði og ákæruvaldið skilur eðlilega hvorki upp né niður í þessu.“
Læknamistök á HSS Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Reykjanesbær Tengdar fréttir Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir fer fram á að ákæru á hendur honum, fyrir að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi, verði vísað frá dómi. 19. maí 2026 14:12 Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Héraðssaksóknari telur Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi með því að sjá til þess að henni yrðu gefin morfín og morfínskyld lyf. Þung lyfjameðferð hafi orðið til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar. Börn hennar krefjast samtals tuga milljóna króna í miskabætur. 12. maí 2026 10:11 Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Sjá meira
Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Skúli Tómas Gunnlaugsson hjartalæknir fer fram á að ákæru á hendur honum, fyrir að hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi, verði vísað frá dómi. 19. maí 2026 14:12
Skúli Tómas hafi svipt konuna lífi með morfíni Héraðssaksóknari telur Skúla Tómas Gunnlaugsson hjartalækni hafa svipt Dönu Jóhannsdóttur lífi með því að sjá til þess að henni yrðu gefin morfín og morfínskyld lyf. Þung lyfjameðferð hafi orðið til þess að Dana lést af völdum meðferðarinnar. Börn hennar krefjast samtals tuga milljóna króna í miskabætur. 12. maí 2026 10:11