Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar 20. júlí 2026 08:02 Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins, ritaði á dögunum grein undir yfirskriftinni „Áfengi heim að dyrum?" Ég vil byrja á því sem við erum sammála um því það er ekki lítið. Áfengi er ekki venjuleg vara. Neysla þess getur valdið skaða, meðal annars auknum líkum á krabbameinum, og samfélagið hefur ríka hagsmuni af því að draga úr þeim skaða. Krabbameinsfélagið vinnur þar mikilvægt starf sem á skilið virðingu - og fær hana hér. En einmitt vegna þess að markmiðið er alvarlegt skiptir máli að röksemdirnar haldi. Grein Höllu hvílir á einni forsendu: að aukið aðgengi auki neyslu. Sú forsenda hefur verið prófuð hér á landi á okkar tímum og hún stóðst ekki prófið (raunar á sama við um allar tilslakanir með aðgengi að áfengi erlendis frá þar sem á annað borð er hægt að mæla mismun fyrir og eftir). Tölurnar tala Undanfarin ár hefur aðgengi að áfengi á Íslandi aukist meira en nokkru sinni: útsölustöðum ÁTVR hefur fjölgað, opnunartími lengst, netverslanir sprottið upp - bæði á vegum ríkisins og einkaaðila, eins og Halla bendir sjálf á. Ef forsendan væri rétt ætti neyslan að hafa aukist. Hún gerði það ekki. Samkvæmt tölum Hagstofunnar dróst áfengisneysla saman um fjögur prósent árið 2023, og sé leiðrétt fyrir fjölgun erlendra ferðamanna er samdrátturinn miklu meiri. Tölur fyrir 2024 sýna áframhaldandi samdrátt. Sagan segir sömu sögu, bara í hina áttina. Milli 1964 og 1984 jókst áfengisneysla á mann um 67 prósent - án þess að aðgengi breyttist að nokkru marki. Þetta stendur ekki í áróðursriti heldur í sögu ÁTVR sjálfrar, „Engin venjuleg verslun", þar sem einnig kemur fram að allt frá 1950 hafi áfengissalan fylgt þróun ráðstöfunartekna heimilanna. Neysla ræðst af kaupmætti, menningu og lífsstílsbreytingum - ekki af því hvort ríkisstarfsmaður eða einkaaðili raðar flöskum í hillu. Trúir ríkið eigin kenningu? Hér mætti staldra við og spyrja einfaldrar spurningar: Ef aðgengi ræður neyslu, hvers vegna er tóbak - sem enginn deilir um að er skaðleg vara - selt í hverri matvörubúð og sjoppu landsins á meðan léttvín er læst inni í ríkisverslun? Ríkið rekur meira að segja tóbaksheildsölu. Mynd og hljóð fara ekki saman: í verki hagar ríkið sér eins og það trúi ekki eigin kenningu. Sama tvöfeldni birtist í sögu ÁTVR sjálfrar. Stofnunin hélt því eitt sinn fram að einungis starfsfólki hennar væri heimilt að afhenda vín og að netverslun með áfengi bryti gegn auglýsingabanni. Í dag rekur hún eigin netverslun og felur öðrum afhendinguna. Á sama tíma er stærsta vínbúð landsins, Fríhöfnin í Keflavík, hönnuð þannig að hver einasti farþegi - þar með talin ungmenni - gengur í gegnum hana, umvafinn tilboðum á vöru sem sögð er svo hættuleg að hún þoli ekki almenna verslun. Bókhaldið Því er gjarnan haldið fram að hagnaður ríkisins af áfengissölu standi undir samfélagskostnaði. Það er misskilningur. Áfengisgjaldið - einn hæsti áfengisskattur Evrópu - er lagt á í tolli við innflutning og rennur í ríkissjóð óháð því hver selur vöruna. Það stendur óbreytt hvort sem flaskan er afhent í Skeifunni eða við útidyr. Rekstur ÁTVR sjálfrar kostar hins vegar milljarða á ári og hagnaður stofnunarinnar kemur af heildsölu tóbaks, ekki smásölu áfengis. Sá sem telur einkaleyfið hornstein lýðheilsu þarf að útskýra hvers vegna hornsteinninn er fjármagnaður með tóbaksgróða. Þetta mætti umorða, ríkissjóður myndi auka tekjur sínar með því að hætta verslunarrekstrinum. Heim að dyrum - til hverra? Yfirskrift greinar Höllu vísar til óttans um að áfengið rati heim til þeirra sem síst skyldi, ekki síst ungmenna. Sá ótti á skilið alvarlegt svar. Netverslun með rafrænum skilríkjum eins og íslenskar einkareknar netverslanir nota, auðkennir hvern kaupanda með óyggjandi hætti. Sjálfsafgreiðslukassi gerir það ekki og ÁTVR hefur ár eftir ár fallið á eigin skilríkjaeftirliti. Í sögu stofnunarinnar stendur meira að segja berum orðum að sennilega sé mest allt áfengi sem unglingar drekka keypt í vínbúðunum. Sé unglingadrykkja mælikvarðinn er rafræn auðkenning framfaraskref, ekki ógn. Hagsmunir hverra? Eftir stendur spurningin um „hagsmuni fárra." Neytendur á Íslandi eru ekki fáir - þeir eru þjóðin sjálf, sem greiðir hæsta áfengisverð álfunnar og fær í staðinn úrval á forsendum eins aðila sem má ekki einu sinni flytja inn vín sjálfur. Sá fái sem núverandi fyrirkomulag ver er einokunarleyfishafinn og þeir pilsfaldarkapítalistar sem ráða yfir hilluplássinu í verslunum. Og þau álitaefni sem uppi eru um netverslun eru einmitt það - álitaefni sem dómstólar hafa ekki leitt til lykta og æðstu embættismenn hafa sjálfir sagt óljós. Óútkljáð ágreiningsefni er ekki afgreitt lögbrot. Við Halla eigum sameiginlegt markmið: minni skaða af áfengi. Leiðin þangað liggur um það sem sannanlega virkar - forvarnir, rafræna auðkenningu og meðferðarúrræði. Hún liggur ekki um vörn fyrir fyrirkomulag sem ríkið fylgir ekki sjálft og fjármagnar með tóbaki. Lífið liggur við, skrifar Halla. Einmitt þess vegna eigum við að ræða það sem virkar - ekki það sem venst-illa. Höfundur er eigandi áfengisverslunarinnar Santé. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Áfengi Netverslun með áfengi Arnar Sigurðsson Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar