Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. júlí 2026 10:57 Héraðsdómurinn í Sermersooq í Nuuk þar sem mennirnir voru dæmdir. Kenny McFly Íslendingur á þrítugsaldri var í vetur dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar á Grænlandi auk fimm ára endurkomubanns fyrir að hafa reynt að smygla tæplega tólf milljónum króna í reiðufé út úr landinu í því skyni að þvætta þær.
Dómurinn yfir manninum sem er 29 ára íslenskur ríkisborgari féll í nóvember. Hann játaði skýlaust brot sín en upp komst um smygltilraunina við öryggisleit á flugvellinum í Nuuk. Brotið sem um ræðir var framið 22. september á síðasta ári. Hann var dæmdur til fimm mánaðar vistunar í grænlensku fangelsisúrræði. Peningarnir voru gerðir upptækir, manninum vísað úr landi og lagt á hann fimm ára endurkomubann. Í umfjöllun grænlenska miðilsins Sermitsiaq kemur fram að maðurinn sé af norðurafrísku bergi brotinn. Hann er ekki sagður hafa neina persónulega tengingu við Grænland en hann á fjölskyldu í Reykjavík. Samverkamaður hans, 21 árs Portúgali, var í síðustu viku einnig dæmdur til fimm mánaða fangelsisvistar, brottvísunar og fimm ára endurkomubanns fyrir sama brot. Saksóknarar fóru fram á að hann yrði einnig dæmdur fyrir smygl á hálfu kílói af kókaíni og tíu kílóum af hassi til Grænlands á árunum 2024 og 2025. Þetta féllst héraðsdómurinn í Sermersooq ekki á þar sem umrædd fíkniefni fundust aldrei. Saksóknari hélt því fram að skilaboð sem fundust á farsíma mannsins sem sönnuðu sekt hans en það tók dómurinn ekki undir. Þriðji maðurinn hefur verið ákærður fyrir sama brot en mál hans hefur ekki farið fyrir dómara.
Grænland Íslendingar erlendis Smygl Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu Sjá meira