Halldór Árni Sveinsson er látinn Jakob Bjarnar skrifar 17. júlí 2026 09:11 Halldór Árni Sveinsson er látinn en hann var sannkölluð menningarstofnun í Hafnarfirði. Halldór Árni Sveinsson, myndlistar- og fjölmiðlamaður og kennari, er látinn. Halldór Árni var fæddur 22. febrúar 1955 en hann varð bráðkvaddur að heimili sínu í Hafnarfirði.
Það var sonur hans, Hörður Brynjar Halldórsson, sem tilkynnti andlát hans á Facebook. Halldór Árni, sem var einstakur húmoristi, hefur átt við vanheilsu að stríða undanfarin ár og hann sá ástæðu til að gefa út sérstaka tilkynningu á Facebook þar að lútandi nýverið en gat ekki stillt sig um að snúa tilkynningunni upp í gamanmál að hætti hússins: „Ástæða þess að ég hef lítið sést í miðbæ Hafnarfjarðar að undanförnu er vegna stuttrar sjúkrahúslegu sem er mitt einka- og hjartans mál, og hefur ekkert að gera með lengingar eða styttingar af neinu tagi, enda lengi talinn með stærri og að vallarsýn þreknari mönnum. Og vegna orðróms um að ég hafi leitað til snyrtistofu til að breyta útliti mínu þá er það alger þvættingur, en vissulega hafði ég gert mér vonir um að starfsmenn stofunnar gætu lengt á mér stutt nefið, sem vel að merkja tókst ekki. Þá hafa óábyrgir aðilar haft í flimtingum stuttan atvinnuferil minn sem jólasveins á áttunda áratug síðustu aldar, ásamt tveimur vinum mínum sem voru í hlutverki Hurðarskellis og Skyrgáms. Svo því sé haldið til haga var ég þá einungis í hlutverki Kjötkróks – aldrei, og ég meina aldrei Stúfs. Annað var það nú ekki.” Fáir er nokkrir voru eins tryggir heimabæ sínum Hafnarfirði og Halldór Árni. Hann helgaði sig beinlínis Firðinum og miðaði allt sitt starf við að skrá flest sem þar fór fram – heimildagildi starfs hans sérstaklega fyrir Hafnfirðinga er ómetanlegt. Halldór Árni gekk í Flensborg en fékk fljótlega áhuga á fjölmiðlun og stofnaði til að mynda Útvarp Hafnarfjörð sem hann rak um árabil. Hann kom sér fljótlega upp kvikmyndatökuvélum og beindi vélinni að flestu því sem hann taldi merkilegt á hafnfirska vísu: menningarviðburðum og bæjarstjórnarfundum. Halldór var drátthagur, hann fékkst við myndlist og setti upp sýningar. Á seinni árum ævi sinnar fór hann í Kennaraháskólann, nældi sér í kennsluréttindi og kenndi í framhaldi af því nemendum Flensborgarskóla fjölmiðlafræði. Ýmsir minnast Halldórs Árna Sveinssonar á Facebook og nefna flestir það sama, að hann hafi verið öflugasta menningarstofnun Hafnarfjarðar. Árum saman myndaði hann og birti efni af ríku mannlífi bæjarins og skóp með störfum sínum ómetanleg menningarverðmæti.
Andlát Hafnarfjörður Framhaldsskólar Myndlist Fjölmiðlar Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira