Stytta af Charlie Kirk á Times Square Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. júlí 2026 11:52 Hér má sjá styttuna sem Furnari hefur búið til af Charlie Kirk og áhrifavaldinn sjálfan rétt áður en hann var skotinn til bana. Höggmyndalistamaður hyggst koma fyrir gylltri málmstyttu af hægrisinnaða áhrifavaldinum Charlie Kirk á Times Square á eins árs ártíð hans þann 10. september næstkomandi. Kirk var skotinn til bana á fyrirlestri við Utah Valley-háskóla síðasta haust.
Hinn 57 ára Sergio Furnari stendur að baki gjörningnum en hann hefur unnið að gerð styttunnar í fimm mánuði. Furnari er fæddur í Sikiley en flutti til New York fyrir 35 árum síðan og valdi einn fjölfarnasta stað borgarinnar til að koma styttunni fyrir. „Ég er New York-búi svo Times Square er eins og la piazza,“ sagði Furnari en piazza er ítalska orðið yfir torg. „Allt gerist í miðju borgarinnar.“ Styttan er í raunstærð hins tæplega tveggja metra Kirk og heldur hann á hljóðnema enda var Kirk þekktastur fyrir rökræður sínar við háskólanema um pólitísk málefni. Á bringu styttunnar mun standa „Freedom“ eða „Frelsi“. Sjá einnig: Hver var Charlie Kirk? Styttan er í grunnin búinn til úr málmi en er síðan þakin þykku resínefni. Furnari hyggst þó safna nægum pening til að skapa útgáfu af styttunni úr ryðfríu stáli en hann hefur einungis safnaði um 1.500 dölum af þeim 150 þúsund sem hann telur sig vanta. View this post on Instagram A post shared by Sergio Furnari (@sergiofurnariart) Þó Furnari hafi lýst því yfir að styttan verði í miðri Manhattan hefur hann ekki tjáð sig um hvar nákvæmlega hún verður né hvernig hann hyggst komast upp með að koma henni þar fyrir. Planið virðist vera að koma styttunni fyrir hátt uppi á trukki, sem verði lagt við torgið, svo hægt sé að sjá til styttunnar. „Þetta verður á miðju Times Square, miðju alheimsins,“ sagði Furnari við fylgjendur sína á Instagram og hvatti aðdáendur áhrifavaldsins til að mæta með fjölskyldu og vinum. Furnari segist hvorki vera Demókrati né Repúblíkani og gerð styttunnar sé ekki pólitískt útspil. „Það er ekki eins og ég hafi verið aðdáandi eða fylgjandi hans. Raunar var ég sammála honum í fæstu en þetta snýst um málfrelsi,“ sagði Furnari við The New York Post.
Morðið á Charlie Kirk Bandaríkin Myndlist Tengdar fréttir Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Charlie Kirk, hægri sinnaður bandarískur áhrifavaldur og bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, var skotinn til bana fyrir framan um þrjú þúsund manns á viðburði í háskóla í Utah. Ríkisstjóri Utan hefur lýst morðinu sem „pólitísku launmorði“. 10. september 2025 23:40 Mest lesið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Stjörnurnar syngja inn haustið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Sjá meira
Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Charlie Kirk, hægri sinnaður bandarískur áhrifavaldur og bandamaður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, var skotinn til bana fyrir framan um þrjú þúsund manns á viðburði í háskóla í Utah. Ríkisstjóri Utan hefur lýst morðinu sem „pólitísku launmorði“. 10. september 2025 23:40