Geri foreldra og börn að lögbrjótum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 16. júlí 2026 11:00 Kolbrún og Sigríður tókust á um fyrirhugað samfélagsmiðlabann. Samsett Þingmaður Miðflokksins segir að ný áform um samfélagsmiðlabann geri börn og foreldra að lögbrjótum þar sem ekki standi til að framfylgja lögunum á nokkurn hátt. Þingmaður Flokks fólksins vill meina að breytingin sé ekki samfélagsmiðlabann heldur verkfæri fyrir foreldra.
Greint var frá áformum mennta- og barnamálaráðherra um að lögfesta samfélagsmiðlabann fyrir börn sem ekki eru komin á fimmtánda aldursár. Áformin voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í gær en þar er tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir því að brot gegn reglunni varði refsingu heldur sé um almennt verndarákvæði að ræða. „Ég er full efasemda um þetta mál svona frá ýmsum bæjardyrum séð. Í fyrsta lagi er það þannig að löggjöf er ætlað að hafa réttaráhrif, það er ekki hlutverk löggjafar að festa þar í texta alls kyns óskhyggju,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins. Sigríður og Kolbrún Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, tókust á um málið í kvöldfréttum Sýnar í gær. Þær eiga báðar sæti í velferðarnefnd Alþingis sem kemur til með að taka fyrirhugaða frumvarpið fyrir. „Þótt við séum öll sammála um það að bæði börn og fullorðnir eyða allt of miklum tíma á samfélagsmiðlum og í einhverju símaskrölti af ýmsum toga þá er það ekki til nokkurs árangurs fallið að festa það í lög að fólk megi ekki nota þessa miðla,“ heldur Sigríður áfram. Varhugaverð áform Skiptar skoðanir eru á banninu þar sem þeir yngstu lýsa vonbrigðum en fullorðnir eru sáttir. Agnar Már Másson, fréttamaður Sýnar, ræddi við nokkra líkt og sjá má hér fyrir neðan. Sigríður telur áformin hins vegar bera þess merki að stjórnmálamenn „séu að reyna að gera bara eitthvað“ til að svara ákalli í samfélaginu. „Ég tók eftir því í samráðsgáttinni að samhliða þessu, ef að yrði að lögum, þá ætli ríkisstjórnin að beita sér fyrir einhvers konar árvekniátaki. Ég hlýt að spyrja mig, er ekki hægt að fara í forvarnarstarfið án þess að festa svona í lög sem engu mun skipta, engar réttarverkanir mun hafa og við vitum að muni ekki bera nokkurn árangur? Það er ekki hægt að framfylgja svona banni,“ segir hún. Sigríður segir hins vegar varhugavert að setja ákvæðið í lög. „Menn vita að hvorki er hægt að framfylgja þeim og vita fyrirfram að fólk mun ekki standa við og gera þar með börn og foreldra þeirra að lögbrjótum.“ Ekki bann heldur verndarákvæði Kolbrún vill ekki meina að um eiginlegt bann sé að ræða heldur verði lögin eins konar verkfæri fyrir foreldra. „Þetta er verndarákvæði, þetta er barnaverndaraðgerð þannig að þetta er allt annað en bann. Þetta mun breyta mjög miklu, auðvitað er hægt að brjóta öll lög en þetta verður mjög mikil hjálp fyrir foreldra að geta stuðst við þetta og vonandi verður þetta síðan normið,“ segir hún. „Hér erum við að tala um aðgerð sem mun skipta miklu máli. Börn eru jú að vaxa og þroskast og við vitum alveg hvernig samfélagsmiðlar og netið eru, þarna er ýmislegt sem börn, jafnvel ekki einu sinni fullorðnir, ráða við hvað þá börnin.“ Hún vísar í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem setji skýrar línur um hlutverk stjórnvalda í barnavernd. Þá segist hún hafa fengið jákvæð viðbrögð úr samfélaginu. „Það er búið að vera gott samráð þannig að mér finnst meirihluti af fólki byrjaður að skilja þetta. “ Samfélagsleg ábyrgð Slíkt bann tók gildi fyrr á árinu í Ástralíu en skoðanakannanir benda til þess að þrjú af hverjum fimm börnum sem þegar voru með samfélagsmiðlareikning áður en bannið tók gildi séu enn á samfélagsmiðlum. „Þó svo að við getum alltaf sagt að það sé hægt að brjóta lög eigum við þá ekki að setja nein lög?“ spyr Kolbrún aðspurð hvernig eigi að framfylgja lögunum. „Við höfum samfélagslega ábyrgð, við erum að setja útivistartíma, við erum að setja bílprófsaldur. Þau labba ekki inn og kaupa sér áfengi fyrr en þau eru orðin fullorðin og tóbak. Þannig að þetta er ábyrgð samfélagsins að taka þetta skref og við erum búin að reyna fræðsluna í mörg ár og hún hefur ekki dugað.“
Samfélagsmiðlar Börn og uppeldi Símanotkun barna Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Sjá meira