Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar 16. júlí 2026 07:30 Mikill meirihluti Íslendinga hefur orðið fyrir svikatilraun á neti eða í síma á síðustu árum. Mun færri hafa tapað fjármunum í hendur svikahrappa, en vandinn er engu að síður viðvarandi. Nú þegar sumarfrí standa sem hæst er ekki síður mikilvægt að vera á varðbergi, þar sem svikahrappar tvíeflast þegar fríin ganga í garð. Rúmlega átta prósent hafa tapað fjármunum á síðustu árum Nýleg könnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu sýnir að langstærstur hluti Íslendinga er vel á verði þegar kemur að þessum málum. Spurt var hvort fólk hefði lent í svikatilraun á neti eða í síma á síðustu þremur árum. Tveir þriðju, eða 66,7 prósent, svöruðu því játandi, en þriðjungur sagðist ekki hafa orðið fyrir slíkri tilraun. Þátttakendur voru einnig spurðir hvort þeir hefðu, á síðustu þremur árum, verið fórnarlamb svika á neti eða í síma og tapað fjármunum. Langstærstur hluti þátttakenda, eða 91,5 prósent, svaraði neitandi en 8,5 prósent sögðust hafa tapað fjármunum í hendur svikahrappa á tímabilinu. Þótt hlutfallið sé tiltölulega lágt er ljóst að fjöldi fólks verður enn fyrir barðinu á svikahröppum. Netsvikarar svífast einskis til að hafa af fólki fjármuni og eru sífellt að þróa tæknilegri og trúverðugri svikaaðferðir. Því er mikilvægt að fólk sé alltaf á varðbergi, líka í sumarfríinu. Nokkrar sekúndur sem fara í að sannreyna skilaboð geta komið í veg fyrir verulegt fjárhagslegt tjón. Heilbrigð tortryggni getur skipt sköpum. „Vinsamlegast greiðið innan sólarhrings“ Nú eru sumarfrí í algleymingi og fjöldi fólks á ferðinni. Á sama tíma tvíeflast svikahrappar sem nýta sér að fólk er afslappaðra, vinnustaðir fámennari og árvekni fólks minni. Sama mynstur sést gjarnan í kringum önnur stór frí, svo sem páska og jól. Því er mikilvægt að vera á varðbergi, jafnvel þegar markmiðið er einfaldlega að slaka á. Svikahrappar reyna gjarnan að skapa tímapressu. Það gera þeir meðal annars með gerviskilaboðum. Þau geta birst sem tölvupóstur frá yfirmanni með beiðni um tafarlausa millifærslu, skilaboð frá hóteli eða flugfélagi um að staðfesta bókun eða tilkynning um pakka sem bíður greiðslu. Þessi skilaboð eiga það sameiginlegt að fá fólk til að bregðast hratt við án þess að kanna málið betur. Svikararnir treysta á að við séum á ferð og flugi og gefum okkur því síður tíma til að sannreyna upplýsingar. Það getur margborgað sig að staldra við Við getum dregið verulega úr hættunni með einföldum varúðarráðstöfunum. Gefðu þér augnablik til að fara vandlega yfir skilaboðin, athuga sendanda og gaumgæfa vefslóðir áður en þú smellir. Það getur sparað bæði fjármuni og óþarfa fyrirhöfn. Þar að auki kemur það í veg fyrir svekkelsið sem fylgir því að verða fyrir svikum. Grunnreglan er einföld: Ef þú færð skilaboð þar sem þér er sagt að borga strax, kannast ekki við að hafa átt viðskiptin sem vísað er til, eða eitthvað annað kemur undarlega fyrir sjónir, þá er betra að staldra við og skoða málið betur. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Öryggis- og varnarmál Fjármál heimilisins Fjármálafyrirtæki Fjármálamarkaðir Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar