Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar 16. júlí 2026 08:01 Í vorskýrslu Kjaratölfræðinefndar (ekki hætta að lesa, þetta er áhugavert) er fjallað um framleiðnivöxt atvinnugreina á tveimur mismunandi tímabilum, annars vegar á áratugnum 2015-2025 og hins vegar á árunum 2022-2025. Undanfarin misseri hefur töluvert verið tönnlast á því í pólitískri umræðu að framleiðni í ferðaþjónustu sé sérstaklega lág (sem er rangt, framleiðni í ferðaþjónustu er í meðallagi í hagkerfinu í heild) og því sé rétt sé að stjórnvöld beini stuðningi fremur að öðrum greinum, t.d. í samhengi atvinnustefnu. Gjarnan er talað um þetta þannig að lítil tækifæri séu til framleiðnivaxtar í ferðaþjónustu. Það kemur því mögulega ýmsum á óvart að samkvæmt skýrslu Kjaratölfræðinefndar er ferðaþjónusta sú atvinnugrein þar sem framleiðni jókst mest á síðasta áratug. Ekki er síður áhugavert að ferðaþjónusta er í öðru sæti yfir framleiðnivöxt atvinnugreina árin 2022-2025 og í raun ein aðeins þriggja atvinnugreina sem sýndu framleiðnivöxt á því tímabili yfir höfuð. Auðvitað spilar inn í þessar tölur að íslensk ferðaþjónusta í núverandi mynd er atvinnugrein sem hefur verið í örri þróun frá 2010, en það samhengi ætti líka að fá fólk til að staldra aðeins við stöðuna. Ungar atvinnugreinar í örri þróun, þar sem orðið hefur gríðarlega hröð fjárfesting, þurfa nefnilega tíma til að þroskast svo að vöruþróun og fjárfestingar byrji að skila arði fyrir alvöru, bæði fyrir fyrirtækin og fyrir samfélagið. Skynsamleg nálgun stjórnvalda á slíka þróun er að styðja við uppbygginguna og þá fjárfestingu sem orðið hefur um allt land með aðgerðum sem auka samkeppnishæfni greinarinnar. Stöðugt rekstrarumhverfi er eitt það mikilvægasta sem atvinnugrein eins og íslensk ferðaþjónusta þarf á að halda í þessum fasa, þar sem hröð þróun og fjárfesting hefur búið til þekkingu sem leitt hefur til aukinnar framleiðni í greininni. Á sama tíma að ári En stöðugt rekstrarumhverfi virðist því miður ekki í spilunum. Frá því að ferðaþjónusta tók að vaxa upp úr 2010 hefur það verið nær árleg regla að stjórnvöld boði nýja skatta eða skattahækkanir sem leggjast á atvinnugreinina. Að þessu sinni skal leggja á nýtt náttúru- og innviðagjald með það að markmiði að koma til móts við álag á ferðamannastaði, standa undir uppbyggingu, viðhaldi, öryggi og vernd og fjármagna t.d. markaðssetningu og rannsóknir. Í umræðu um þennan nýja skatt gleymist hins vegar iðulega að ferðamenn greiða nú þegar tvenns konar skatta sem hafa þessi sömu yfirlýstu markmið, þ.e. gistináttaskatt og innviðagjald. Ísland stefnir því í að verða ferðamannaskattaglaðasta land heims, eina landið þar sem ferðamenn greiða þrjá mismunandi ferðamannaskatta með nákvæmlega sama markmiðinu. Og af einhverjum ástæðum skila skatttekjurnar sér illa til þeirra verkefna sem markmiðin tilgreina. Og hverjum er það að kenna? Tjah, ekki ferðaþjónustufyrirtækjum. Ofan á þetta hefur nú verið tilkynnt í fjármálaáætlun að hækka skuli virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Baðlón, ein mikilvægasta og sérstæðasta ferðaþjónustuvara Íslands, skal nú verðlögð hærra sem skaðar m.a. fjárfestingar sem lagt hefur verið í, atvinnutækifæri á landsbyggðinni og áfangastaðinn Ísland í heild. Virðisaukaskattur á ferðaþjónustu skal semsagt hækkaður þvert á skýr loforð ríkisstjórnarinnar. Í ár bjóðast ferðaþjónustufyrirtækjum því tvær nýjar skattahækkanir. Hvað ætli þær verði margar á sama tíma að ári? Stöðugt rekstrarumhverfi takk Atvinnugreinin sem skilar þriðjungi allra gjaldeyristekna þjóðarbúsins og um 200 milljörðum króna í skattgreiðslur á ári hverju, og hefur auk þess aukið framleiðni sína meira en aðrar atvinnugreinar síðasta áratug, óskar hér með eftir því að vera látin í friði í nokkur ár. Leyfið okkur að setja fjárfestingarnar í vinnu án nýrra skattahækkana á hverju ári. Þannig munu framleiðni í greininni, samkeppnishæfni hennar og verðmætasköpun fyrir samfélagið allt vaxa hraðar. Þetta er ekki flókin hagfræði: Hættið að éta útsæðið, þá verður uppskeran betri. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Atvinnurekendur Jóhannes Þór Skúlason Mest lesið Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar