Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar 15. júlí 2026 07:31 Í reglulegri ferðavenjukönnun sem birt var í síðustu viku má sjá áhugaverðar upplýsingar og mikilvægar vísbendingar um vegferð almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Sýnilegasta breytingin er mikill fjölgun þeirra sem segjast reglulega taka Strætó. Fyrir þremur árum sögðust 60% aðspurðra á höfuðborgarsvæðinu aldrei eða sjaldan taka Strætó en hlutfallið hefur nú lækkað í 48%. Yfir helmingur íbúa höfuðborgarsvæðisins hafði með öðrum orðum notað Strætó. Notkun á öllum greiðsluleiðum Klappsins, sem er snjallforrit Strætó, eykst. Mestu tíðindin eru að 9% aðspurðra sögðust hafa notað snertilausar greiðslur með korti eða síma til að greiða fyrir fargjald. Sú nýjung var kynnt í lok ársins á undan og hefur mælst mjög vel fyrir, svo ekki sé meira sagt. Einfaldari og aðgengilegri Strætó skilar mun fleiri viðskiptavinum Það eru ekki bara góðar fréttir að fleiri noti Strætó heldur er þetta sterk vísbending um að almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu séu á réttri leið. Á allra síðustu árum hefur Strætó orðið mun einfaldari í notkun, einkum fyrir þau sem nota hann sjaldan eða öðru hverju. Sem dæmi er hægt að skipuleggja ferðir og fylgjast með vögnum í algengum kortasnjallforritum eins og hjá Apple og Google. Aukin tíðni þýðir að síður þarf að fylgjast með tímatöflum sem ásamt snertilausum greiðslum fækkar verulega þröskuldum fyrir nýja viðskiptavini sem gjörþekkja ekki kerfið. Klappið hefur fests í sessi sem lausn fyrir reglulega viðskiptavini og aukning á öllum greiðsluleiðum sýnir að æ stærri hópur þekkir fyrirkomulag Klappsins og notar þær leiðir sem henta best. Miklu fleiri búa nálægt tíðum almenningssamgöngur en áður Tíðni Strætó var aukin talsvert á lykilleiðum um tveimur mánuðum áður en könnunin var gerð. Með aukningunni fór hlutfall íbúa sem búa innan 400 metra frá stoppistöð með 10 mínútna tíðni á annatíma úr um 18% í rúmlega 50%. Áhrif aukningarinnar koma ekki bersýnilega fram í könnuninni enda er hún gerð tiltölulega skömmu eftir hana. Aukin þjónusta skilar sér í fleiri notendum til lengri tíma, en það tekur tíma að breyta ferðavenjum. Fyrirhuguð innleiðing á talningarkerfi í vögnum mun skila okkur rauntímaupplýsingum um fjölda viðskiptavina. Hlutfall Strætó í heildarsamgöngum á höfuðborgarsvæðinu stendur svo gott sem í stað í könnuninni. Það vekur þó athygli að í niðurstöðum er sérstaklega gerð grein fyrir því að mikið óveður gekk yfir dagana fyrir könnunina, sem talið er m.a. hafa áhrif á talsverða fækkun ferða á hjóli m.v. árin á undan. Í því ljósi hlýtur að teljast jákvætt að hlutdeildin minnki a.m.k. ekki. Þjónustugæðin hafa aukist mikið með fleiri ferðum og það verður spennandi að sjá þróunina þegar næsta könnun birtist eftir þrjú ár. Fólk vill nota almenningssamgöngur meira Það sem e.t.v. skiptir meira máli, og lesa má úr gögnunum, eru ástæður þess að fólk notar síður almenningssamgöngur. Þegar spurt er hvað fengi fólk til að nota almenningssamgöngur meira fækkar þeim mikið frá síðustu könnun sem nefna aukna tíðni ferða eða lægra verð þjónustu. Styttri ferðatími er lang algengasta svarið, utan þeirra sem einfaldlega kjósa sér annan ferðamáta, og um fjórðungur nefnir áreiðanleika tímatöflu. Litlar breytingar eru á þessum svörum frá fyrri könnunum. Þetta er þekkt stef, kannanir sýna ítrekað að stór hluti almennings vill nota almenningssamgöngur meira en þau gera. Varða, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins, birti sem dæmi könnun fyrr á þessu ári þar sem 42% aðspurðra sögðust jákvæð fyrir því að nota annars konar samgöngur en einkabíl. Í sömu könnun nefndu 70% svarenda langan ferðatíma ástæðu þess að þau noti ekki aðra ferðamáta og 50% að leiðakerfið henti ekki. Innviðirnir þurfa með öðrum orðum að verða betri fyrir þau sem vilja og geta notað almenningssamgöngur, hvort sem það er annað slagið, til að komast til vinnu og skóla eða sem eina samgöngumátann í daglegu lífi. Almenningssamgöngur hafa aldrei verið aðgengilegri og einfaldari í notkun. Næsta skref er að tryggja áreiðanleika þeirra og bæta leiðarkerfið svo enn fleiri hafi aðgang að hágæða almenningssamgöngum. Ríkið og sveitarfélög sameinast um að efla almenningssamgöngur Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. voru stofnaðar á síðasta ári og eru í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu auk íslenska ríkisins. Markmiðið er að skapa traustari og skilvirkari almenningssamgöngur til framtíðar með stöðugri fjármögnun og umbótum. Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins tóku þann 1. júlí sl. við rekstri almenningssamgangna á svæðinu; strætisvögnum enn sem komið er og svo nýju hraðvagnakerfi, Borgarlínu, sem mun tryggja miklum meirihluta höfuðborgarsvæðisins greiðan aðgang að tíðum ferðum með stuttum ferðatíma þegar það hefur akstur. Nú eru í undirbúningi og framkvæmd mikilvægar og tímabærar úrbætur á innviðum sem munu breyta miklu í náinni framtíð. Smíði Fossvogsbrúar er t.a.m. í fullum gangi og á áætlun. Verið er að undirbúa framkvæmdir við Sæbrautarstokk og aðrar framkvæmdir vegna Borgarlínunnar, auk þess sem stöðugt er unnið að minni úrbótum á borð við uppbyggingu hjóla- og göngustiga og nýja sérakrein Strætó á Kringlumýrarbraut sem tekin var í gagnið á síðasta ári. Þessar úrbætur munu stytta ferðatíma og auka áreiðanleika þar sem vagnar eru í auknum mæli aðskildir frá almennri umferð. Helsta ástæða þess að erfitt hefur reynst að treysta tímatöflum á annatíma er einmitt að Strætó situr fastur í sömu teppu og önnur umferð. Það er því ástæða til bjartsýni fyrir hönd almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður nýrrar ferðavenjukönnunar sýna svo ekki verður um villst að breytingar í átt að einfaldari, tíðari og áreiðanlegri almenningssamgöngum skila sér í fleiri viðskiptavinum, sem létta um leið á bílaumferð. Höfundur er framkvæmdastjóri Almenningssamgagna höfuðborgarsvæðisins ohf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngumál Umferð Davíð Þorláksson Strætó Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ræður Evrópusambandið hvort dánaraðstoð verði leyfð á Íslandi? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun 4.677 nýir vegfarendur á leið í skólann Lára Hrafnsdóttir,Gunnar Geir Gunnarsson skrifar Skoðun Evran lækkar ekki vextina Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Rétturinn er sá sami – en tækifærið er það ekki Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar