Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. júlí 2026 10:39 Ásmundur Rúnar Gylfason er aðstoðaryfirlögregluþjónn. Vísir/Vilhelm Lögreglumenn á varðsvæði lögreglustöðvar eitt hafa fengið tugi tilkynninga um innbrot frá mánaðamótum. Lögreglan telur verknaðinn ekki vera skipulagða glæpastarfsemi heldur tilviljunarkennd innbrot á heimili og í fyrirtæki.
Innbrot á sunnudag í sælkerabakaríið Sweet Aurore Reykjavík vakti töluverða athygli um helgina. Aurore Pélier Cady, eigandi bakarísins, sagði í samtali við fréttastofu að töluverðum fjármunum hefði verið stolið þaðan og tekur fram að hennar tilfinning sé sú að innbrotum hafi fjölgað töluvert. Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir í samtali við fréttastofu að sú tilfinning sé rétt. Af 61 tilkynningu um innbrot sem borist hafa lögreglu frá mánaðamótum hafa 45 verið á varðsvæði lögreglustöðvar eitt sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. „Það er einhver smá toppur núna,“ segir Ásmundur í samtali við fréttastofu. „Þetta eru ekki þessir hefðbundnu skipulögðu eignaþjófnaðir,“ bætir hann við. Unnið sé að því að rannsaka málin, þar á meðal innbrotið í Sweet Aurora Reykjavík. Ekki er talið að sömu einstaklingarnir séu að verki í flestum tilfellum og eru þau heldur tilviljunarkennd. Þó séu nokkur nöfn sem komi oftar upp en önnur. Grunur leikur á að þó nokkur innbrot séu til þess að fjármagna neyslu en sá grunur hefur ekki verið staðfestur. Ásmundur ítrekar, sér í lagi þar sem margir eru að heiman þessar vikurnar, að ef fólk sé á leiðinni í ferðalag að það hugi að því að ganga vel frá eignum sínum og læsa dyrum.
Lögreglumál Reykjavík Bakarí Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Sjá meira