Vekja athygli á innköllun leikfangs Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 13. júlí 2026 11:32 Ekki liggur fyrir hvort að leikfangið fáist hér á landi. Vöruvaktin HMS og Umhverfis- og orkustofnun vekja athygli á innköllun í Bretlandi á Squeezy Dumplings leikfangi vegna efnahættu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá HMS á Vöruvaktinni. Um er að ræða mjúkt plastleikfang í körfulaga plastumbúðum. „Varan hefur verið innkölluð í Bretlandi þar sem ytra lag leikfangsins inniheldur of mikið magn af benseni,“ segir í tilkynningunni en bensen er þekkt krabbameinsvaldandi efni. Það getur valdið skemmdum á erfðaefni. Innöndun bensens getur jafnframt valdið ertingu í augum, nefi og hálsi auk sviðatilfinningar í meltingarvegi og ertingu í húð. Samsons Cash and Carry Ltd. er dreifingaraðili vörunnar í Bretlandi en á henni er hvorki vörunúmer né lotunúmer. Ekki er vitað hvort varan hafi verið seld hér á landi en hægt er að festa kaup á henni í vefverslunum. Leikfangið virðist samt sem áður vinsælt og hefur vakið umræðu á Facebook-hópnum Mæðratips. „Neytendur sem eiga vöruna eru hvattir til að hætta notkun hennar tafarlaust,“ segir í tilkynningunni. „Jafnframt eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að vera vakandi fyrir leikföngum barna sinna. Ef leikfang hefur sterka eða óvenjulega efnalykt, eða ef grunur vaknar um að það geti verið óöruggt, er ráðlagt að taka það úr umferð og láta börn ekki leika sér með það.“
Innköllun Mest lesið Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Opin vinnurými: Starfsfólki líður illa og finnst erfitt að einbeita sér Atvinnulíf Ef krónan væri bíll Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira