Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar 13. júlí 2026 11:31 Á örfám mínútum mun tunglið hylja sólina og breyta björtum sumardegi í rökkur – náttúruviðburði sem hundruð þúsunda manna fá að upplifa, víðsvegar um heiminn. Ný könnun Gallup fyrir Ferðamálastofu sýnir að 43% landsmanna ætla að fylgjast með almyrkvanum frá heimili sínu eða í næsta nágrenni en aðeins um 6% hyggjast ferðast sérstaklega til að upplifa hann. Fyrir flesta landsmenn eru það nefnilega ákveðin forréttindi að geta upplifað almyrkvann í eigin heimabyggð. Ef veðuraðstæður eru hagstæðar er í flestum tilvikum lítil ástæða til að leggja í langt ferðalag. Með því má ekki aðeins njóta einstakrar náttúruupplifunar heldur einnig draga úr umferðarálagi og stuðla að auknu öryggi fyrir alla. Fyrir marga erlenda gesti er almyrkvinn tilefni til að ferðast yfir hálfan hnöttinn til Íslands. Fyrir flesta landsmenn er staðan allt önnur. Langflestir geta upplifað hann í eigin heimabyggð. Undanfarna mánuði hafa stjórnvöld, almannavarnir, sveitarfélög, ferðaþjónustan og fjölmargir samstarfsaðilar undirbúið daginn af kostgæfni. Þar hefur Sævar Helgi Bragason einnig gegnt mikilvægu hlutverki með fræðslu um almyrkvann, viðurkenndum sólmyrkvagleraugum og upplýsingavefnum solmyrkvi2026.is. En samhliða þessari einstöku upplifun fylgir einnig ábyrgð. Almyrkvinn sjálfur verður aðeins sýnilegur í örfáar mínútur, en ferðalagið til og frá áhorfsstaðnum getur staðið yfir í marga klukkutíma. Þar liggja stærstu áskoranirnar þegar kemur að öryggi. Stærsta áskorunin verður á vegunum Þegar þúsunda manna leggja af stað á sama tíma skapast álag sem vegakerfið er ekki hannað fyrir. Langar biðraðir myndast, bílastæði fyllast, fólk freistast til að leggja í vegköntum eða stöðva á hættulegum stöðum, það getur skapað hættu og aðgengi viðbragðsaðila getur raskast verulega. Þetta er ástæða þess að almannavarnir, lögregla, Vegagerðin, sveitarfélög, ferðaþjónustan og fjölmargir aðrir hafa unnið saman að undirbúningi þessa dags í langan tíma. Markmiðið er einfalt: að allir geti notið almyrkvans á öruggan hátt. Reynsla undanfarinna ára frá Bandaríkjunum, Ástralíu og öðrum stöðum þar sem almyrkvi á sólu hefur verið sýnilegur, sýnir að mestu öryggisáhætturnar tengjast fyrst og fremst umferðinni þegar mikill fjöldi innlendra og erlendra ferðamanna keyra um á bílum sínum. Undirbúningur stjórnvalda, viðbragðsaðila og ferðaþjónustunnar skapar mikilvægar forsendur fyrir öruggri framkvæmd þessa einstaka viðburðar. Slíkur undirbúningur nær þó aðeins markmiði sínu ef almenningur leggur einnig sitt af mörkum. Ákvarðanir sem teknar eru í daglegum aðstæðum – að sýna þolinmæði í umferðinni, virða lokanir og fyrirmæli og forðast óþarfa áhættu – geta haft úrslitaáhrif á öryggi og upplifun allra. Skipuleggjum ferðina jafn vel og áhorfið Fyrir þá sem ákveða að ferðast skiptir góður undirbúningur sköpum. Veljið áfangastað áður en lagt er af stað. Fylgist með veðurspám og upplýsingum um umferð dagana á undan og sama morgun. Á upplýsingasíðu stjórnvalda um almyrkvann, island.is/almyrkvi, eru samankomnar helstu upplýsingar um öryggi, umferð, ferðalög og annan undirbúning vegna dagsins. Auk þess hefur Sævar Helgi Bragason byggt upp vefinn solmyrkvi2026.is, þar sem finna má ítarlega fræðslu um almyrkvann, áhorf og örugga notkun sólmyrkvagleraugna. Gerið ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega og hafið nægt eldsneyti, drykkjarvatn, nesti, hlý föt og fullhlaðinn síma meðferðis. Leggið aðeins þar sem það er heimilt og virðið lokanir og fyrirmæli lögreglu, björgunarsveita og annarra viðbragðsaðila. Munum einnig að vegir eru ekki áhorfspallar. Það getur virst freistandi að stöðva þar sem útsýnið er fallegt, en eitt ökutæki sem stöðvað er á röngum stað getur skapað hættu fyrir fjölda annarra og tafið akstur lögreglu, sjúkrabíla og björgunarsveita þegar mest á reynir. Verum góðir gestgjafar Ferðaþjónusta á Íslandi hefur um árabil lagt sífellt meiri áherslu á öryggi, fræðslu og öflugt samstarf stjórnvalda, viðbragðsaðila og atvinnugreinarinnar. Almyrkvinn gefur okkur tækifæri til að byggja áfram á þeim grunni og sýna í verki hvernig samvinna og sameiginleg ábyrgð stuðla að öruggri upplifun fyrir alla. Við sem búum hér getum tekið vel á móti gestum, leiðbeint þeim og sýnt þolinmæði þegar álag verður á vegum og ferðamannastöðum. Erlendir gestir geta á móti sýnt íslenskri náttúru, samfélagi og þeim sem hér búa virðingu með því að fylgja leiðbeiningum og ganga vel um. Þannig verður upplifunin betri fyrir alla. Eftirminnileg upplifun fyrir réttar ástæður Almyrkvi er einstakur vegna þess að hann sameinar fólk. Á örfáum augnablikum munu hundruð þúsunda manna horfa til himins og upplifa sama náttúrufyrirbærið – augnablik sem verður ekki endurtekið á Íslandi um langa framtíð. Með góðum undirbúningi, gagnkvæmri tillitssemi og ábyrgum ákvörðunum getum við tryggt að dagurinn verði eftirminnilegur af réttum ástæðum og að ferðalagið skyggi ekki á upplifunina. Með góðum undirbúningi, gagnkvæmri tillitssemi og ábyrgum ákvörðunum geta landsmenn og gestir sameiginlega stuðlað að því að 12. ágúst verði dagur sem minnst verður fyrir stórbrotna náttúruupplifun en ekki atvik sem hefði mátt koma í veg fyrir. Látum myrkvann verða einstakan. Ekki ferðina þangað.Látum myrkvann verða einstakan. Ekki ferðina þangað. Höfundur er sérfræðingur í öryggismálum hjá Ferðamálastofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Almyrkvi 12. ágúst 2026 Ferðaþjónusta Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kristrún skýrði loksins hvað verður kosið um Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar