Fjórir í haldi eftir árás á blaðamenn á Vesturbakkanum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. júlí 2026 15:22 Árásin átti sér stað nærri bænum Sinjil. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. EPA Fjórir voru handteknir á Vesturbakkanum í Palestínu grunaðir um að hafa ráðist á erlenda blaðamenn. Talið er að fjórmenningarnir séu ísraelskir landnemar.
Bandaríski fjölmiðillinn CNN greinir frá og tekur fram að blaðamaður þeirra hafi orðið fyrir árás landnemanna. Blaðamennirnir voru staddir á þeim hluta Vesturbakkans sem ísraelskir landnemar hafa tekið yfir. Þeir höfðu lagt leið sína þangað þar sem að ár er liðið frá því að Saif Musallet, palestínskur-bandarískur maður, var barinn til dauða af landnemum. Nokkrum mínútum eftir að blaðamennirnir mættu á staðinn þar sem Musallet dó komu nokkrir landnemar og þjörmuðu að þeim auk þess sem þeir komu í veg fyrir að blaðamennirnir gætu yfirgefið staðinn. Fjórmenningarnir voru vopnaðir hnífum úr viði, stálrörum og steinum. Hoppuðu þeir upp á einn af bílum blaðamannanna og brutu þar rúðu. Skömmu síðar komu lögregla og ísraelskir hermenn á vettvang og tóku landnemana fjóra í hald. „Ísraelska lögreglan og herinn líta hvers kyns birtingarmyndir ofbeldis eða eignaspjalla mjög alvarlegum augum, sérstaklega þegar það varðar fjölmiðlafólk við störf sín,“ segir í yfirlýsingu frá lögreglunni.
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira