Fótbolti

Ver af­skipti Trumps og segir dómarann vafa­saman

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andrew Giuliani ræddi um heimsmeistaramótið, sem nú stendur yfir, við fjölmiðla í gær.
Andrew Giuliani ræddi um heimsmeistaramótið, sem nú stendur yfir, við fjölmiðla í gær. getty/James Devaney

Andrew Giuliani, formaður starfshóps Hvíta hússins vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta, hefur varið afskipti Donalds Trump Bandaríkjaforseta til að fá banni Folarins Balogun aflétt. Giuliani segir að dómarinn sem rak Balogun út af sé vafasamur pappír.

Brasilíski dómarinn Raphael Claus gaf Balogun rauða spjaldið þegar Bandaríkin unnu Bosníu, 2-0, í 32-liða úrslitum HM. Bannið var hins vegar gert skilorðsbundið og Balogun gat því spilað gegn Belgíu í sextán liða úrslitum. Það dugði skammt því Bandaríkin töpuðu leiknum, 4-1, og þátttöku þeirra á HM er því lokið.

Trump stærði sig að aðkomu sinni af því að banni Baloguns var aflétt og sagði að Claus væri frekar grunsamlegur í ljósi fortíðar hans. Trump vísaði þarna væntanlega til rannsóknar á vegum brasilíska þingsins á hagræðingu úrslita þar í landi og hvernig dómurum var raðað niður á leiki. Claus var þó ekki sakaður um neitt misjafnt.

„Okkur fannst það mjög grunsamlegt að þarna væri dómari sem hafði verið rannsakaður vegna hagræðingar úrslita og sérstaklega óreglulegra rauðra spjalda,“ sagði Giuliani við blaðamenn í gær.

„Ofan á það bætist sú staðreynd að það hvernig VAR-ferlið var virkjað þarna var rangt. Við svona brot má í raun ekki nota hægspilun í VAR en þeir gerðu það. Þannig að þegar þessar tvær staðreyndir eru lagðar saman þá fannst okkur þetta mjög, mjög grunsamlegt.“

Giuliani segir að það rétta í stöðunni hafi verið að óska eftir því að bann Baloguns yrði endurskoðað.

„Sjáið til, bandarísk stjórnvöld, hvort sem það er í kjörklefanum eða á íþróttavellinum, vilja heiðarlegan leik, ekki satt? Okkur fannst þetta því mjög grunsamlegt, svo ekki sé meira sagt, alveg eins og flestum Bandaríkjamönnum, og ég held alveg eins og flestum sem litu á þetta með óhlutdrægum augum. Við erum ánægð með að bandaríska knattspyrnusambandinu tókst að leggja fram áfrýjunina og teljum að rétt niðurstaða hafi fengist,“ sagði Giuliani.

Þegar brasilískur blaðamaður benti honum á að Claus hefði aðeins borið vitni í rannsókninni á hagræðingu úrslita viðurkenndi Giuliani að dómarinn hefði ekki verið sakaður um neitt glæpsamlegt. Hann sagði þó að Claus hefði verið bendlaður við rannsóknina vegna óreglulegra rauðra spjalda eins og hann orðaði það.

FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið, lýsti yfir stuðningi við Claus eftir gagnrýni Trumps.

„FIFA lítur á Raphael Claus sem einn af fremstu atvinnudómurum heims og góðan liðsmann úrvalshóps dómara FIFA á heimsmeistaramótinu. Á ferli sínum hefur hann ávallt sýnt fyllstu fagmennsku og heilindi,“ segir í yfirlýsingu FIFA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×