Breskur ævintýramaður í undanúrslit á Wimbledon Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2026 19:01 Arthur Fery er að spila frábærlega á Wimbledon-risamótinu og heldur uppi heiðri heimamanna. Getty/Matthew Stockman/ Bretinn Arthur Fery er öllum að óvörum kominn alla leið í undanúrslit á Wimbledon-risamótinu í tennis og þetta er eitt stærsta ævintýrið í tennisíþróttinni á árinu 2026.
Í átta manna úrslitum sló hann út Ítalann Flavio Cobolli, sem er í tíunda sæti heimslistans, eftir að hafa unnið settin 6-4, 7-6 (7-4), 6-0. Sá síðarnefndi tapaði úrslitaleiknum á Roland-Garros í júní. Fery er fyrsti karlkyns keppandinn í 25 ár sem kemst í undanúrslit Wimbledon eftir að hafa fengið Wildcard-boð á mótið. Hann er í 114. sæti heimslistans. THE FERY TALE CONTINUES 👏Local kid Arthur Fery takes down No. 9 Flavio Cobolli in straight sets to advance to the semifinals at Wimbledon 🇬🇧 pic.twitter.com/xB90Loah4S— SportsCenter (@SportsCenter) July 8, 2026 Þessi 23 ára gamli leikmaður er líka fyrsti Bretinn sem kemst í undanúrslit Wimbledon síðan 2022. Þá var Cameron Norrie einn af þeim fjórum sem eftir voru á mótinu. Fery gæti orðið fyrsti Bretinn til að vinna Wimbledon síðan Andy Murray gerði það árið 2016. Á föstudaginn mætir hann Þjóðverjanum Alexander Zverev í baráttunni um sæti í úrslitaleiknum. Zverev vann sinn fyrsta risatitil á ferlinum þegar hann sigraði á Roland-Garros í síðasta mánuði. Þjóðverjinn sigraði Bandaríkjamanninn Taylor Fritz í þremur settum í átta manna úrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Ítalinn Jannik Sinner og serbneska goðsögnin Novak Djokovic. Djokovic reynir að verða fyrsti leikmaðurinn til að vinna 25 risatitla í einliðaleik, sem er met, og áttunda Wimbledon-titil sinn í einliðaleik karla, sem er jöfnun á meti. Djokovic er 39 ára og 51 dags gamall og verður elsti keppandinn í undanúrslitum Wimbledon síðan Ken Rosewall komst þangað árið 1974. The moment. The celebration. The noise. Arthur Fery is a Wimbledon semi-finalist. pic.twitter.com/ObXayNhdMD— Wimbledon (@Wimbledon) July 8, 2026
Tennis Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira