„Gleður mitt Blikahjarta“ Gunnar Egill Daníelsson skrifar 5. júlí 2026 09:02 Ólafur Ingi Skúlason var feginn að ná erfiðum sigri á Akranesi í gær. Vísir / Diego Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks var að vonum hæstánægður með 2-1 endurkomusigur á ÍA í 13. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær. „
Líðanin er mjög góð að sjálfsögðu. Þetta var erfiður leikur, erfitt fyrir leikmenn að eiga við völlinn. Hann var þurr og erfiður. Við gerðum það sem við þurftum til þess að finna leiðir til að vinna þennan leik. Mín tilfinning var svolítið að þetta myndi ráðast á mistökum. Við komumst inn í leikinn aftur í stöðunni 1-1 eftir að við vinnum boltann og svo skorum við frábært sigurmark. Ég er gríðarlega ánægður með karakterinn, viljann og hvernig við þjösnuðum okkur í gegnum þetta þó svo við höfum spilað fallegri og betri fótboltaleiki,“ sagði Ólafur Ingi við Sýn Sport eftir leik. Fundu leið til að vinna ÍA var einu marki yfir í leikhléi en stuttu eftir að hann gerði tvöfalda skiptingu jafnaði Breiðablik metin á 64. mínútu í kjölfar mistaka hjá ÍA. „Við fórum úr þessari þriggja manna vörn og yfir í fjögurra manna. Kannski gerði það ekki gæfumuninn en þeir sem komu inn í leikinn gerðu ótrúlega vel. Við fengum orku með þeim. Mér fannst fyrri hálfleikurinn vera í jafnvægi, við vorum aðeins að stýra ferðinni en ekki að komast neitt af neinu viti. Þegar við töpuðum boltanum voru þeir hættulegir og kannski að skapa hættulegri stöður. Svo snerist það við í seinni hálfleik. Þá náðum við aðeins að þrýsta þeim niður inni á milli. Þetta var erfiður leikur í alla staði og ég hrósa strákunum fyrir að finna leið til að vinna,“ sagði Ólafur Ingi um hvað breyttist í leiknum. Þá verða þessir ungu að stíga upp Hinn 17 ára gamli Þór Andersen Willumsson skoraði sigurmarkið í sínum öðrum leik í Bestu deildinni eftir að hafa komið inn á fyrir hinn 15 ára gamla Arnar Bjarka Gunnleifsson, sem lagði upp fyrra mark Blika. Því er ljóst að mikið traust er lagt á herðar ungra manna innan raða Breiðabliks. „Við erum bara búnir að vera í meiðslabrasi svona mest allt tímabilið. Ég held að það séu einhverjir tíu frá í dag hjá okkur. Þá verða þessir ungu að stíga upp og þeir eru svo sannarlega búnir að gera það undanfarnar vikur og í vetur. Við erum búnir að sjá að það er hellings efniviður. Það er ánægjulegt að koma þeim inn á völlinn og ennþá ánægjulegra að sjá að þeir eru að banka. Eins og ég sagði um daginn hefur hópurinn verið að stækka með hverri vikunni. Hann stækkaði líka í dag. Þór kemur inn á og gerir virkilega vel. Addi var duglegur allan leikinn og leggur upp fyrsta markið. Það gleður mitt Blikahjarta að sjá þessa stráka taka risaskref í hverri viku. Þetta eru duglegir drengir og við eigum líka fleiri. Það er mjög jákvætt,“ sagði Ólafur Ingi Skúlason að endingu í samtali við Sýn Sport.
Besta deild karla Íslenski boltinn Breiðablik Mest lesið Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Handbolti Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Fótbolti „Jón Þórarinn og sóknarleikurinn glöddu mig mest“ Handbolti Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Hágrét í bílnum með mömmu Fótbolti Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Fótbolti Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Enski boltinn Fleiri fréttir Hágrét í bílnum með mömmu Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Fyrsta tap Mourinho eftir ótrúlega dramatík Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Mikael látinn bíða eftir fyrsta stiginu Enrique samþykkti að ná sjö árum hjá PSG Sjóðheitur Ísak skoraði í fyrsta sigrinum Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Sjá meira