Fá AA- í einkunn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. júlí 2026 10:46 Greint er frá niðurstöðu Scope Ratings í tilkynningu á síðu Stjórnarráðsins. VÍSIR/VILHELM Scope Ratings, evrópskt lánhæfismatsfyrirtæki, hefur veitt ríkissjóði Íslands lánhæfiseinkunnina AA- í innlendri og erlendri mynt. Horfurnar eru taldar stöðugar.
Að mati Scope Ratings eru helstu styrkleikar íslenska hagkerfisins háar tekjur á mann í alþjóðlegum samanburði, tiltölulega lágar og lækkandi skuldir hins opinbera, trúverðug ríkisfjármálastefna og sterk skuldbinding stjórnvalda til ábyrgrar ríkisfjármálastjórnar. Ytri staða þjóðarbúsins sé sterk og stuðli það að viðnámsþrótti gagnvart ytri áföllum. „Það sem helst takmarkar lánshæfiseinkunn Íslands er tiltölulega fábreyttur útflutningur, sem gerir hagkerfið útsett fyrir breytingum í erlendri eftirspurn, viðskiptakjörum og gengissveiflum. Þá einkennist íslenskt hagkerfi af meiri sveiflum í helstu hagstærðum, svo sem hagvexti, verðbólgu og innlendri eftirspurn, en almennt gerist meðal sambærilegra ríkja,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þetta er í fyrsta skipti sem Scope Ratings metur lánshæfi Íslands en fyrirtækið hóf að meta lánshæfi ríkja árið 2017 samkvæmt tilkynningunni. Í dag gefur Scope Ratings úr einkunn fyrir 38 ríki og er eina fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu sem er viðurkennt innan matsramma seðlabanka Evrópu. Hæsta matið sem hægt er að fá er AAA og þar á eftir er AA.
Lánamál Rekstur hins opinbera Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Sjá meira