Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Jón Þór Stefánsson skrifar 3. júlí 2026 22:53 Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Anton Brink Afkoma heildarsamstæðu ríkisins síðasta árs var neikvæð um 182 milljarða króna. Tekjur námu 1507 milljörðum og rekstrargjöld 1646 milljörðum.
Þetta kemur fram í ríkisreikningi fyrir árið 2025 sem var birtur í dag. Þar segir einnig að hrein fjármagnsgjöld hafi numið 71 milljarði króna. Matsbreytingar eigna hafi verið 35 milljarðar króna, hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins hafi verið jákvæð um einn milljarð og sölutap af fjármálagerningum og ófjárhagslegum liðum verið um átta milljarðar. Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins um reikninginn segir að árið 2025 hafi einkennst af auknum efnahagslegum stöðugleika í samanburði við árin á undan. Verðbólga lækkaði, kaupmáttur heimila jókst og stýrivextir tóku að lækka. Haft er eftir Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, að„árangur af ábyrgð og festu í hagstjórn birtist í vaxandi mæli í efnahagslegum stöðugleika og áþreifanlega í betri hag almennings. Þar skiptir trúverðug stefna í ríkisfjármálum miklu máli.“ „Endurreisn fjárhagslegs styrks ríkissjóðs er ekki að fullu lokið og enn er nokkuð í land til að ná langvarandi verðstöðugleika. Aukin alþjóðleg verðbólga og hækkun alþjóðlegra vaxta á fyrri helmingi árs 2026 valda því að það mun taka heldur lengri tíma að ná fullum árangri í lækkun verðbólgu en vonir stóðu til. Engu að síður erum við vel á veg komin og ásetningur stjórnvalda um að ná efnahagslegum stöðugleika er ótvíræður og birtist hann í fjárlögum ársins 2026 og mun gera enn frekar í fjárlögum fyrir árið 2027. Árangur Íslands er ekki sjálfsagður og þess vegna brýnt að halda áfram á markaðri braut. Það krefst aga, festu og úthalds. Þar munum við ekkert gefa eftir,“ segir hann. Afkoma ríkissjóðs fyrir árið 2024 var neikvæð um 56 milljarða, og árið þar á undan neikvæð um 81 milljarð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Rekstur hins opinbera Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira