„Klukkan er fimm einhvers staðar“ Bjarki Sigurðsson skrifar 3. júlí 2026 20:44 Stelpurnar í FC Tussu voru í góðum gír á Pollamótinu. Vísir/Bjarki Pollamótið hófst með pompi og prakt á Akureyri í dag. Elstu keppendurnir eru á sextugs- og sjötugsaldri en sumir voru ekki með hugann endilega við boltann.
Pollamót Þórs og Samskipa fer fram ár hvert samhliða N1-móti drengja. Konur tuttugu ára og eldri og karlar 28 ára og eldri eru gjaldgengir í mótið og stjörnur fortíðarinnar sýndu skemmtilega takta. Níu hundruð keppendur eru skráðir til leiks. „Þetta fer rosa vel af stað. Við byrjuðum klukkan tíu í morgun. Fólk var mætt snemma, fór beint á barinn í treyjunum,“ segir Aðalgeir Axelsson, mótsstjóri. Keppendur eru að koma hérna ár eftir ár, hvað er það við Pollamótið sem heillar? „Ég held það sé fyrst og fremst veðrið á Akureyri, sem er alltaf gott. Sólin finnur alltaf leið til að kíkja á okkur þessa helgi. Svo er fjörið allsráðandi. Það er eiginlega galið að vera ekki hérna,“ segir Aðalgeir. Aðalgeir Axelsson er mótsstjóri Pollamótsins.Vísir/Bjarki Eintómt stuð Fyrir suma er fótboltinn algjört aukaatriði líkt og sjá má í klippunni hér fyrir neðan þar sem stelpur í liði sem kallar sig FC Tussur voru komnar vel í gírinn um hádegisbilið. Lið Real Grímseyjar er mætt til leiks eins og síðustu tuttugu ár. Liðið var stofnað og einn liðsmaður hefur mætt á hvert einasta mót, það er markvörðurinn Hannes Arnar Gunnarsson. „Við erum búnir að taka gull, silfur og brons nokkrum sinnum. Alltaf jafn gaman,“ segir Hannes. Ferðu ekkert að verða of gamall í þetta? „Jú, en við ákváðum að taka tuttugu ára afmælið með stæl og gera nýja búninga. Svo sjáum við bara hvað gerist.“ Liðið Real Grímsey er tvítugt í ár. Vísir/Bjarki Gera varúðarráðstafanir Með hækkandi aldri eykst meiðslahættan og því mikilvægt fyrir eldri leikmenn að hita vel upp. „Maður er orðinn svo viðkvæmur þegar maður er orðinn svona gamall. Þú þarft að hita vel upp,“ segir Björn Ingi Hilmarsson. Hefur þú heyrt um marga sem hafa verið að slasa sig á þessu móti? „Já, ég er búinn að vera hér í fimmtán til tuttugu ár. Það er alltaf eitthvað. Svona ein til tvær hásinar á hverju móti, jafnvel meira.“
Akureyri Fótbolti Grín og gaman Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira