Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Árni Jóhannsson skrifar 2. júlí 2026 22:13 Vísir / Anton Brink Elvar Már Friðriksson átti mjög góða kafla í leik Íslands og Ítalíu fyrr í kvöld. Hans framlag dugði þó ekki til enda mjög erfitt að eiga við Ítalíu í þeim ham sem þeir voru í í kvöld. Elvar skoraði 13 stig en leiknum lauk 83-102 fyirr gestina. „
Þetta var bara bras frá fyrstu mínútu“, sagði Elvar þegar hann var spurður að því hvort það væri ekki erfitt að eiga við Ítalíu þegar þeir hitta nánast úr öllu. „Mér fannst þeir hitta úr öllu og alltaf þegar maður sneri sér við þá sá maður boltann fara ofan í körfuna. Partur af því var að við vorum ekki nógu nálægt þeim og ekki nógu fastir fyrir en svo verður maður bara að hrósa þeim því þeir voru ógeðslega góðir í dag.“ Vegna þessa þá náði íslenska liðið aldrei að grípa þau tækifæri sem gáfust til að snúa dæminu við. „Það kom aldrei neitt áhlaup hjá okkur og aldrei neitt flæði. Þeir voru svo bara betri í dag og meira beittir. Við vorum flatari og skrefinu eftir á.“ Það er einn séns í viðbót fyrir Ísland að tryggja sig áfram á næsta stig undankeppni HM en það er viðureign við Breta á sunnudag. „Ég er bara spenntur fyrir því. Nú er maður þannig lagað búinn að fá æfingaleikinn fyrir úrslitaleikinn og það eru engar afsakanir þá við mætum bara klárir og gerum vel þar.“ Hvað þarf Ísland að passa upp á gegn Bretunum? „Ég er nú ekki búinn að skoða þá og veit ekki hvaða menn eru að mæta en miðað við síðasta leik þá eru þetta miklir íþróttamenn. Þeir eru líkamlega sterkir þannig að við þurfum að halda þeim frá körfunni og vera ákveðnari varnarlega. Ekki hleypa þeim í sóknir sem þeim líður vel með og svo höfum við næga hæfileika í sókn. Við getum hlaupið í bakið á þeim en þannig erum við bestir.“ Ítalía fékk 20 vítaskot í fyrri hálfleik í kvöld og Tryggvi Hlinason lenti í villuvandræðum snemma í kvöld. Elvar vildi samt ekkert eyða tíma í dómgæslu kvöldsins. „Maður er vælandi yfir þessu á gólfinu en þegar leikurinn er búinn þá verður maður að gleyma dómgæslunni. Þannig er keppnisskapið í manni. Stundum finnst manni halla á sig og stundum ekki. Það upplifa örugglega allir það sama. Ég nenni ekki að vera að væla yfir því. Það er bara áfram gakk.“
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Fleiri fréttir Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Sjá meira