„Mjög ánægður að skora tvö mörk“ Árni Gísli Magnússon skrifar 28. júní 2026 20:21 Nakkim var frábær fyrir Val í kvöld. Vísir/Pawel Cieslikiewic Valur sótti 4-2 sigur norður yfir heiðar gegn Þór á VÍS-vellinum á Akureyri í 12. umferð bestu deildar karla.
Markus Lund Nakkim, leikmaður Vals, skoraði tvö mörk í sigrinum, en hann spilar í öftustu línu og gat því glaðst sérstaklega yfir því að skora tvö mörk ásamt því að sigra leikinn. „Mjög ánægður með sigurinn. Við gerðum þetta auðvitað aðeins of spennandi, hefðu átt að vera önnur úrslit í lokin, eða önnur frammistaða í seinni hálfleiknum en sigur er sigur og við sýndum góðan karakter í lokin að koma þessu yfir línuna og fá stigin þrjú þannig ég er mjög ánægður.“ Valur var með algjöra stjórn á leiknum í fyrri hálfleik en Þórsarar komu sterkari út í síðari hálfleikinn og var staðan orðin jöfn, 2-2, á 70. mínútu. „Ég held að fyrri hálfleikurinn sé þar sem við viljum vera hvað gæði varðar. Frábær frammistaða heilt yfir. Við ætluðum auðvitað ekki að hætta að gera það sem við gerðum í fyrri hálfleik þega við komum í seinni hálfleikinn en við verðum kannski smá værukærir og stór mistök frá mér sem koma þeim inn í leikinn. Mörk augljóslega breyta leikjum og meðbyrinn breytist. Í seinni hálfleik erum við bara passívir, en hrós á gott skot. Á þessum tímapunkti fyrr á tímabilinu höfum við haft erfitt með að komast aftur inn í leikinn, en við vorum með 20-25 mínútur eftir og gátum áfram byggt upp góðar stöður og færi og við erum mjög ánægðir með að okkur tókst það og komumst yfir línuna en augljóslega er frammistaðan í seinni hálfleik ekki nægilega góð en í dag tökum við sigurinn.“ Valur hefur lent í því áður á tímabilinu að missa leiki niður í vond úrslit og voru leikmenn mögulega farnir að hugsa út í það þegar Þórsarar jöfnuðu leikinn. „Ég held að ósjálfrátt gerist það, sérstaklega þegar ég gerði mistökin í fyrsta markinu þeirra, en það er reynsla og persónuleiki sem kemur þar inn. Þó svo þú hugsir þetta í eina sekúndu þá eru enn 20 mínútur eftir af leiknum og við erum með gæði í liðinu þannig ég held þú verðir bara að hrista þetta af þér og þess vegna ertu hér, til að setja þetta til hliðar og halda áfram. Ég er mjög ánægður með liðið, að við gátum stillt þessa orku innra með okkur og búa til okkar augnablik. Með gæðin sem eru í þessu liði vissum við alltaf að við myndum fá færi og myndum ná að skora ef ég á að segja satt. Aftur; við þurfum að taka þessum og gefa sjálfum okkur kredit fyrir að gera þetta í raun þar sem þetta er ekki eitthvað sem við höfum náð að gera að undanförnu.“ Markus spilar sem miðvörður en skoraði tvö mörk í dag og var ánægður, enda ekki í hverjum leik sem hann kemst á markaskrá. „Mjög ánægður, mjög ánægður að skora tvö mörk auðvitað, glaður að geta hjálpað til en í enda dagsins er ég varnarmaður þannig ég þarf frekar að halda hreinu en að skora tvö mörk en í dag var ég mjög glaður að geta hjálpað til við markaskorun.“
Besta deild karla Valur Þór Akureyri Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Sjá meira