Hleypur í óvenjulegum aðstæðum: „Rosalegur hiti hérna“ Aron Guðmundsson skrifar 26. júní 2026 19:02 Landslagið í sem hlaupið verður í er stórbrotið en hitinn gífurlegur. Elísa hefur reynt að aðlagast undanfarna daga og er klár í að láta til sín taka. Aðsendar myndir Hlaupadrottningin Elísa Kristinsdóttir mun þurfa að spreita sig í sterku áttatíu kílómetra löngu hlaupi í miklum hita á Ítalíu á morgun. Hún stefnir á sæti á verðlaunapalli.
Elísa hefur góða reynslu af því að hlaupa á Ítalíu. Fyrr á árinu vann hún og setti brautarmet í 75 kílómetra hlaupi þar í landi í sterku hlaupi. Framundan núna er 80 kílómetrahlaup í Dólómítunum. Hitabylgja gengur nú yfir meginland Evrópu. Þó aðstæðurnar séu skárri uppi í fjöllunum er hitinn samt sem áður óvenjulegur. „Ég er mjög spennt fyrir hlaupinu. Er búin að fara í tvær brautarskoðanir og held út frá þeim að brautin eigi eftir að henta mér mjög vel. Það er aftur á móti rosalegur hiti hérna. Þrjátíu gráður og full sól. Maður þarf að vera duglegur að sjá vel um sig í hlaupinu. Kæla sig niður og svona. Mikilvægt að flaska ekki á því.“ „Ég myndi ekki kjósa þessar aðstæður fyrir 80 kílómetra hlaup en ég er búin að vera mjög dugleg í hitaþjálfun. Hún vonandi skilar sínu gagni á laugardaginn. Ég ætla ekki að fara búa til áhyggjur yfir því sem ég ræð ekki við. Það eru allir í sama pakkanum þarna.“ Hlaupararnir munu keppa í stórbrotnu umhverfi og er það ekki svo að það taki einbeitinguna frá keppnisbrautinni sjálfri. „Ég þarf frekar að minna mig á að líta aðeins upp. Að vera ekki bara að einblína á stiginn fyrir framan mig. Leyfa mér aðeins að horfa upp og njóta þess sem er í kringum mig. Það er meira vesen heldur en hitt. Þetta er mögnuð náttúra, geggjað umhverfi. Þvílík forréttindi að geta hlaupið í þessu.“ Lavaredo utanvegahlaupið á sér ríka sögu og á Elísa von á mjög sterku hlaupi þar sem að markmið hennar eru skýr. „Það væri algjör draumur að vera allavega á verðlaunasæti, fyrstu þrem. Eins langar mig að reyna vera í kringum níu tímana með þetta verkefni, 80 kílómetrar og 4500 hæðarmetrar. En maður verður bara að sjá. Eins og ég segi þá er gríðarlegur hiti. Ég hef aldrei hlaupið í slíkum hita. Það kemur bara í ljós hvernig það mun ganga. Eins er ég að hlaupa uppi í mikilli hæð. Sem maður getur ekki æft á Íslandi. Það eru alls konar áskoranir sem maður reynir að tækla eins vel og hægt er.“ Viðtalið við Elísu, sem sýnt var í Sportpakkanum á Sýn eftir kvöldfréttir í kvöld, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Hlaup Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Ísland missti af verðlaunum með minnsta mögulega mun Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Sjá meira