Veit ekki hvort Haaland var að grínast Sindri Sverrisson skrifar 25. júní 2026 20:40 Erling Haaland er alveg til í gott grín. Getty/Tom Weller Real Madrid-leikmaðurinn Aurélien Tchouaméni segir franska landsliðið einbeitt fyrir toppslaginn við Noreg í lokaumferð riðlakeppninnar á HM og virðist lítið kippa sér upp við ummæli Erlings Haaland.
Frakkland og Noregur mætast annað kvöld en bæði lið hafa unnið Senegal og Írak og eru því komin áfram í 32-liða úrslitin. Frakkar eru með betri markatölu og dugar því jafntefli á morgun til að vinna riðilinn. Haaland sagði eftir sigur Noregs gegn Senegal að Frakkland myndi eflaust vinna leikinn á morgun: „Ég spái ekki mikið í þetta. Við erum komnir áfram – það er ótrúlegt. Þeir [Frakkar] munu örugglega vinna okkur, þeir munu örugglega vinna allt mótið,“ sagði Haaland við Fox Sport. Aurelien Tchouameni býst við erfiðum leik annað kvöld.Getty/Abdulhamid Hosbas Norski ríkismiðillinn NRK spurði Tchouaméni út í þessi ummæli Haalands og Frakkinn svaraði: „Ég veit ekki hvort hann var að grínast eða ekki, en eins og alltaf munum við einbeita okkur að okkur sjálfum og gera okkur klára í leikinn.“ Ståle Solbakken, þjálfari Noregs, hefur sagt að búast megi við því að hann geri breytingar á byrjunarliðinu til að dreifa álaginu á leikmenn. En Tchouaméni segist ekkert vera að hugsa um hvort Haaland verði í byrjunarliðinu á morgun. „Já? Nei? Það er ekki mitt vandamál, í sannleika sagt. Við erum að fara að mæta hörkuliði og sama hverjir spila þá verður þetta erfiður leikur,“ sagði Tchouaméni.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik „Stolt af því hvernig ég stóð mig í dag“ Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum HM-draumurinn úti hjá Betu og Belgum eftir vító Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Glódís nær risaáfanga og þrjár koma nýjar inn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Daníel og Mikael gátu loksins fagnað saman Sjáðu íslensku eldflaugina frá DJ Sigga Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Fá marbletti og gefa marbletti: „Klárar í slagsmál“ „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Glódís og Þorsteinn sátu fyrir svörum Heitur HM draumur og mega ekki slaka á: „Getur allt farið til fjandans“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjá meira