„Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Agnar Már Másson skrifar 25. júní 2026 17:50 Fulltrúar minnihlutans gagnrýna hagræðingarnar. Samsett/Lýður Valberg Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur gagnrýna nýkynntan niðurskurð í borgarkerfinu. Oddviti Samfylkingarinnar segir miður að mannréttindaskrifstofa hafi verið lögð niður og oddviti Vinstrisins segir að hagræðingaraðgerðirnar hafi verið keyrðar í gegn í flýti.
Átján störf verða lögð niður og níu störf færð milli sviða eða skrifstofa innan borgarinnar. Skrifstofa samskipta og viðburða, mannréttindaskrifstofa og mannréttindaráð verða öll lögð niður. „Þetta er erfiður dagur í ráðhúsinu í dag,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, í samtali við fréttamann Sýnar í ráðhúsinu. „Það eiga margir um sárt að binda. Hins vegar er þetta viðbúið, meirihlutinn hafði talað svona bæði í aðdraganda kosninga og núna í byrjun kjörtímabilsins. Þannig að það var ekki eins og þetta kæmi sem eitthvað sjokk.“ Breytingarnar hafa áhrif á 27 af 40 stöðugildum á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, samkvæmt fréttatilkynningu sem borgin sendi út síðdegis í dag. Pétur segist ekki setja sig upp á móti hagræðingu en gerir athugasemd við forgangsröðun nýs borgarstjórnarmeirihluta. „Hins vegar er verið að leggja niður Mannréttindaskrifstofu og Mannréttindaráð,“ segir borgarfulltrúinn. „Og mér finnst einhver sögn í því þegar það er verið að fjölga nefndum – það er búið að setja upp menningarráð og sérstakt leikskólaráð til þess að leggja áherslu á þau mál, sem er alveg gott og blessað – en mannréttindin urðu einhvern veginn að sitja á hakanum.“ Veistu hvort búið sé að kostnaðarmeta þessar breytingar? „Já, það er gert. Það er nú alltaf svoleiðis að það er dýrt að fara í stjórnskipulagsbreytingar. Þetta eigi að skila sér til lengri tíma. Ég set mig ekki alveg upp á móti því. Það er eðlilegt þegar það kemur nýtt fólk inn í ráðhúsið að það séu gerðar einhverjar breytingar,“ svarar hann. „Mér finnst áhugavert hvað er sett til hliðar og hvernig áherslurnar eru. Mannréttindi eiga undir högg að sækja, loftslagsmál líka, og það virðist ekki vera áhersla á þessi mál í þessum meirihluta.“ Ekki víst að útvistun kosti minna Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins í borgarstjórn, segir að minnihlutaflokkarnir hafi fengið að sjá tillögurnar með afar skömmum fyrirvara. „Ég var að reyna að hraðlesa tillögurnar sem lágu fyrir fundinum.“ Þá sé óskýrt hvernig borgarstjórnin ætli að sinna þeim verkefnum þeirra starfsmanna sem leystir hafi verið af störfum en í tilkynningu kom fram að þeim yrði að mörgu leyti útvistað. „Það er um hópuppsögn að ræða en það er ekki alveg skýrt hvernig nákvæmlega verði staðið að því að sinna þessum verkefnum sem þarf áfram að sinna. Það er áhersla á útvistun verkefna þannig að maður veltir fyrir sér hvort það sé ódýrara til lengri tíma litið ef utanaðkomandi aðili er að fara að sinna utanaðkomandi verkefnum og það er ekki tekið fram í kostnaðarmati. Ekki fitulag Sanna setur þá spurningamerki við framsetningu meirihlutans á hagræðingunum. Það séu einnig mörg verkefni mannréttindaskrifstofu sem færist yfir á önnur svið borgarinnar. „Og auðvitað eru mannréttindi ekkert fitulag. Maður enn að ná utan um þetta.“ Borgarstjórnin áætlar að þessar breytingar geti lækkað rekstrarkostnað borgarinnar um 280 til 330 milljónir króna á ársgrundvelli þegar innleiðingu skipulagsbreytinganna er að fullu lokið. En Sanna ítrekar að ekki liggi fyrir kostnaður við útvistun verkefna. „Svo vitum við það líka að þegar þekking og reynsla starfsfólks sem hefur mikla innsýn í þessi verkefni er ekki lengur til staðar getur það verið kostnaðarsamt þegar lengra er litið.“ Hún segir margar spurningar vakna eftir fund borgarráðs í dag þar sem breytingarnar voru samþykktar, meðal annars hvort borgarstjórnin hyggist ráðast í frekari niðurskurð af þessu tagi. „Við þurfum að fá á hreint nákvæmlega hvað þetta þýðir og hvernig verður haldið utan um verkefnin, hvort það sé eitthvað meira svona í vændum. Hvort við fáum ekki að ræða þau mál og að þetta sé ekki keyrt í gegn í flýti.“
Borgarstjórn Reykjavík Vinstrið Samfylkingin Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Stjórnsýsla Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira