Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Aron Guðmundsson skrifar 25. júní 2026 10:53 Sigurður Gísli hefur undanfarið verið áberandi í kynningarefni hjá veðmálafyrirtækinu Coolbet. Vísir/Egill Enska YouTube-stjarnan Morgan Sam Lee Burtwistle, betur þekktur sem Angry Ginge, sakar íslenska áhrifavaldinn og fyrrverandi fótboltamanninn Sigurð Gísla Bond Snorrason um kynþáttahatur á leik Englands og Gana á HM í fótbolta í Boston fyrr í vikunni.
Í YouTube-myndbandi sem Angry Ginge birtir á rás sinni segir hann frá degi sínum á leikdegi í riðlakeppni HM þar sem að England og Gana mættust í Boston, meðal annars viðbrögð sín úr stúkunni við því sem er að gerast inn á vellinum. Í myndbandinu má sjá að fyrir framan Angry Ginge í stúkunni situr Sigurður Gísli ásamt öðrum Íslendingum í boði veðmálafyrirtækisins Coolbet. Á einum tímapunkti í leiknum sakar Angry Ginge, Sigurð um að hafa verið með kynþáttaníð í stúkunni. Ummæli Sigurðar hafi beinst að leikmönnum Gana. Hann fer og gerir öryggisvörðum á Boston leikvanginum viðvart og vill að Sigurði sé vísað af leikvanginum en fær ekki sínu framgengt. Englendingurinn snýr aftur í stúkuna og Sigurður, sem Angry Ginge blörrar andlitið á, biður hann afsökunar: „Afsakaðu þessi ummæli mín um Gana,“ segir Sigurður við Angry Ginge. „Þetta gerist ekki aftur.“ „Nei þetta mun ekki gerast aftur,“ svarar Angry Ginge. „Vegna þess að þér verður hent út.“ „Í alvöru?“ svarar Sigurður Gísli og biður Angry Ginge um að hætta að taka upp. „Getum við ekki bara gleymt þessu?“ Angry Ginge greinir ekki frá því hvað Sigurður Gísli á að hafa sagt í myndbandinu en í uppgjöri eftir leik segir Angry Ginge frá því að Sigurði hafa ekki verið vísað af leikvanginum.
HM 2026 í fótbolta Kynþáttafordómar Íslendingar erlendis Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag Sjá meira