Gera alvarlega athugasemd við niðurrif á Sæbraut Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. júní 2026 12:34 Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns segir að verkið sé ómetanlegt. Safnstjóri Gerðarsafns gerir alvarlega athugasemd við niðurrif á iðnaðarhúsi að Dugguvogi 42 við Sæbraut þar sem til stendur að gera tímabundna hjáleið fyrir umferð á framkvæmdatíma Sæbrautarstokks. Ástæðan er listaverk Gerðar Helgadóttur sem steypt er í vesturvegg hússins.
Hin tímabundna hjáleið á Sæbraut er nú til kynningar í skipulagsgátt en til stendur að reisa Sæbrautarstokk á eins kílómetra kafla frá mislægum gatnamótum Miklubrautar og Vesturlandsvegar og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Í yfirlýsingu frá Gerðarsafni segir að safnið geri alvarlega athugasemd við fyrirætlanir um að gerð verði tímabundin hjáleið fyrir umferð á framkvæmdatíma þar sem iðnaðarhúsnæðið að Dugguvogi 42 er nú til húsa. Ástæðan er mikið menningarsögulegt gildi vegna listaverks Gerðar Helgadóttur sem steypt er í vesturvegg hússins, í níu hlutum og unnin var samhliða byggingu hússins 1971 til 1972. Brynja Sveinsdóttir forstöðumaður Gerðarsafns segir um að ræða sögulegt listaverk. „Gerður hún er ótrúlega merkileg listakona og okkur í Gerðarsafni þykir náttúrulega gríðarlega mikilvægt að það sé verið að halda við verkum listakvenna frekar em að eyðileggja þau og ýta undir þau og sýna. Samkvæmt mínum upplýsingum er þetta líka að öllum líkindum fyrsta útilistaverkið sem er steypt beint inn í byggingu i Reykjavík.“ Brynja segir eðlilegt að fólk spyrji sig hvort ekki megi einfaldlega bara bjarga verkinu en rífa húsið? „En það er ekki svo auðvelt að gera það, þetta er verk sem er steypt beint í húsið, þetta er lágmynd sem er steypt inn þegar húsið er í byggingu, þannig það er alls ekki víst að það verði hægt að bjarga því og eins er verkið mjög samofið húsinu sjálfu, það er gert fyrir upprunalega starfsemi hússins, þar sem þetta vísar í iðnaðinn á svæðinu, þetta vísar í iðnaðarsögu svæðisins alls.“ Hún segist vongóð um að hlustað verði á áhyggjur safnsins áður en húsið verði rifið. Hún segir mótsagnakenndar upplýsingar í samráðsgátt um framkvæmdirnar. „Það er talað um að það sé verið að skoða leiðir til að breyta því eða viðhalda því en á öðrum stað er talað um að húsið og nærliggjandi hús séu látin víkja fyrir tímabundinni lausn fyrir umferð, þannig ég held það hljóti að vera hægt að finna betri lausn á þessu.“
Menning Reykjavík Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira