Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Kjartan Kjartansson skrifar 24. júní 2026 10:03 Kristoffer Storm (t.v.), þingmaður Danmerkurdemókrata, sagði sænskri þingkonu af írökskum uppruna að fara „heim“. Félagi hans, Sebastian Tynkkynen frá Sönnum Finnum (t.h.) sagði henni að „gráta meira“ eftir að frumvarp um brottvísun hælisleitenda sem þeir studdu var samþykkt. Vísir/EPA Tveir norrænir þingmenn sem tilheyra ECR-þingflokknum á Evrópuþinginu eru sakaðir um rasisma í garð sænskrar Evrópuþingkonu. Hótanir um málaferli ganga á víxl. Miðflokkurinn fékk aðild að ECR á sama tíma og flokkar þingmannanna tveggja í vikunni.
Deilurnar hófust eftir atkvæðagreiðslu í Evrópuþinginu þar sem meirihluti samþykkti að koma upp svonefndum „móttökustöðvum“ utan álfunnar fyrir fólk sem hefur verið neitað um hæli í Evrópu í síðustu viku. Sum aðildarríki eru sögð hafa áform um að senda fólk til í Rúanda og Úsbekistan. Nokkrir þingmenn sem studdu tillöguna fögnuðu með því að hrópa „sendum þau til baka“ í þingsalnum. Abir al-Sahlani, sænsk Evrópuþingkona sem fæddist í Írak, skrifaði athugasemd við myndband af fögnuði þingmannanna að hún hefði aldrei upplifað jafnmikið óöryggi í Evrópuþinginu. Abir Al-Sahlani er þingkona sænska Miðflokksins. Hún fæddist í Írak en flúði til Svíþjóðar fimmtán ára gömul. Þingmenn tveggja þjóðernisíhaldsflokka á Evrópuþinginu vildu að hún færi „heim“.Vísir/Getty Við þeim ummælum brást Kristoffer Storm, þingmaður Danmerkurdemókrata, með því að segja að „Abil al-Sahlani ætti að fara heim“. Sebastian Tynkkynen, þingmaður Sannra Finna, bætti við „gráttu meira“. Hóta því að höfða mál refsi þingið þeim ekki Nú hefur Valerie Hayer, leiðtogi Endurnýjum Evrópu (e. Renew Europe), þingflokks miðhægriflokka á Evrópuþinginu, sent inn formlega kvörtun vegna ætlaðra rasískra ummæla þeirra Storm og Tynkkynen til forseta Evrópuþingsins. Hayer krafðist þess að Tynkkynen og Storm yrðu beittir viðurlögum. Annars gæti þingflokkurinn höfðað mál ef Evrópuþingið aðhefðist ekkert. Finnska ríkisútvarpið segir að Tynkkynen hafi á móti hótað að höfða mál á þeirri forsendu að hann hafi ranglega verið sakaður um að hóta þingkonunni. Bæði Danmerkurdemókratar og Sannir Finnar fengu inngöngu í Samtök evrópska íhaldsmanna og umbótasinna (ECR) á sama tíma og Miðflokkurinn í vikunni. Tynkkynen þessi hefur áður vakið athygli vegna ætlaðs kynþáttaníðs. Hann var einn nokkurra þingmanna Sannra Finna sem sýndu samstöðu með finnskri fegurðardrottningu í fyrra með því að birta mynd af sér þar sem þeir gerðu sig „skáeygða“. Þá hefur Tynkkynen í þrígang verið sakfelldur fyrir hatursorðræðu í garð hælisleitenda og útlendinga.
Evrópusambandið Miðflokkurinn Finnland Danmörk Svíþjóð Innflytjendamál Flóttamenn Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira