Wimbledon-meistari í fjögurra ára bann Andri Broddason skrifar 22. júní 2026 21:45 Marketa Vondrousova var dæmt í fjögurra ára bann fyrir að neita að fara í lyfjapróf Vísir/EPA Tékkneska tenniskonan Marketa Vondrousova hefur verið dæmd í fjögurra ára bann fyrir að neita að fara í lyfjapróf.
Í desember 2025 mætti starfsmaður frá ITIA, sem sér um lyfjapróf og því tengdu í tennis, heim til Vondrousova. Hún hafði ekki leyft starfsmanninum að taka prófið og því var hún dæmd í fjögurra ára bann frá tennis. Þetta er stöðluð lengd á banni fyrir alla þá sem neita að taka lyfjapróf. Vondrousova vann Wimbledon-mótið árið 2023 og náði að komast í sjötta sæti heimslistans í tennis. Hún hefur ekki nýtt rétt sinn til að kæra bannið ennþá en rök ITIA fyrir banninu er að hún hafi ekki komið með nógu góða ástæðu fyrir því að losna undan lyfjaprófi. Vondrousova sagði að starfsmaður ITIA greindi ekki frá því hver hann væri né hver tilgangur heimsóknarinnar væri. Vondrousova er verulega ósátt við þessa niðurstöðu og í yfirlýsingu sem hún skrifar á Instagram segist hún aldrei hafa tekið ólögleg efni. Hún hafi oft farið í lyfjapróf eftir atvikið síðasta desember og þar hafi prófin alltaf verið neikvæð. View this post on Instagram A post shared by Markéta Vondroušová (@marketavondrousova) Framtíð hennar er óljós og er ekki vitað hvað framhaldið hjá henni ber í skauti sér. Þó að það sé ekki algengt að neita að fara í lyfjapróf hefur það gerst áður. Rússinn Vladislav Ivanov neitaði að fara í lyfjapróf árið 2024 og fékk einnig fjögurra ára bann. Tennisheiminum er verulega brugðið við þessa niðurstöðu. Einhverjir eru ósáttir við að Vondrousova fékk bann án þess að ólögleg efni hafi verið mæld í henni. Jannik Sinner og Iga Swiatek voru bæði mæld með ólögleg efni í sér og fengu styttra bann. Sinner fékk bann í þrjá mánuði og Swiatek aðeins einn mánuð.
Tennis Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Leik lokið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Sjá meira