Framtíð heilbrigðisþjónustu á Akureyri er í sjónmáli Sindri S. Kristjánsson skrifar 22. júní 2026 10:31 Það var sannkallaður handagangur í öskjunni á Akureyri í vikunni. Tvö risastór uppbyggingarverkefni á sviði heilbrigðisþjónustu litu loks dagsins ljós sitt hvoru megin við sjálfan þjóðhátíðardaginn. Síðastliðinn mánudag var greint frá því að Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefðu tekið tilboði fasteignafélagsins Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Þursaholti sem mun rúma 140 íbúa. Á fimmtudaginn sem leið var svo tekin fyrsta skóflustunga að nýrri legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAK) samhliða undirritun samnings um jarðvinnu framkvæmdanna. Þessir tveir áfangar marka söguleg tímamót fyrir íbúa á Akureyri og stór Eyjafjarðarsvæðinu. Um er að ræða löngu tímabærar fjárfestingar í innviðum heilbrigðiskerfisins á svæðinu sem munu gjörbreyta aðstöðu sjúklinga, aldraðra og starfsfólks. Nútímalegt og metnaðarfullt hjúkrunarheimili Nýja hjúkrunarheimilið í Þursaholti, sem Reitir munu byggja og leigja út til ríkisins til 25 ára, verður um 9.000 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa eins og áður segir. Það þarf engum blöðum um það að fletta að uppbyggingarþörf á hjúkrunarrými fyrir aldraða á Akureyri er gríðarleg. Bæði vegna þess að lítið sem ekkert hefur verið fjárfest af alvöru í þessum málaflokki á Akureyri í meira en áratug, en auk þess er ástand húsnæðisins á Hlíð grafalvarlegt og þolir nákvæmlega enga bið. Þessi tíðindi eru því afar kærkomin og sýnir að ríkisstjórninni er mikil alvara með þjóðarátaki sínu í uppbyggingu hjúkrunarrýma um allt land. Til gamans má geta að á tímabilinu 2019-2024 fjölgaði hjúkrunarrýmum á landsvísu um 69. Á þessu ári einu og sér verða tekin í gagnið 100 ný rými í Reykjavík og strax á næsta ári bætast 270 rými við í Reykjavík, Reykjanesbæ og Hveragerði. Stórbætt aðstaða á Sjúkrahúsinu á Akureyri Á SAk rís nú tæplega 4.300 fermetra legudeildarbygging sem mun hýsa allt að 84 nýjar sjúkrastofur á tveimur hæðum. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá að í þessari nýju byggingu verður er að finna pláss fyrir geðþjónustu sem veitt er SAk, (12 sjúkrastofur og tveimur öryggiseiningum fyrir geðgjörgæslu) ásamt stoðrýmum sem mynda munu glæsileg nútíma dag- og göngudeild geðdeildar. Með nýrri viðbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri er stigið stórt skref fram á við; aðstaða sjúklinga batnar til muna, vinnuumhverfi starfsfólks styrkist og mikilvægi spítalans sem einnar af höfuðstoðum heilbrigðiskerfisins er innsiglað. Framkvæmdin er skýrt dæmi um metnað ríkisstjórnarinnar til að efla innviði og fjárfesta í öflugri heilbrigðisþjónustu um land allt Samhliða skóflustungunni var undirritaður samningur við Akureysku verktakana GV gröfur sem munu hefja á næstu dögum jarðvinnu sem nauðsynlegt er svo byggingarframkvæmdir geti hafist. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur lætur verkin tala Þessi mikla uppbygging kemur ekki af sjálfu sér. Hún er skýrt merki um pólitískan vilja og forgangsröðun. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sýnir það nú í verki að hún lætur verkin tala þegar kemur að heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þakka ber einnig þeim ráðherrum heilbrigðismála og félagsmála - Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og Ingu Sæland og Ragnari Þór Ingólfssyni félagsmálaráðherrum fyrir sýnda og styrka forystu. Með því að keyra þessi tvö risaverkefni áfram af fullum þunga er stigið stórt skref í átt að því að tryggja Akureyri og nágrenni framúrskarandi, örugga og nútímalega heilbrigðisþjónustu til framtíðar. Loforð duga skammt ef þeim fylgja ekki fjármagn og aðgerðir. Vikunni verður minnst sem vikunnar þar sem grundvöllurinn að nýrri og sterkari heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi var lagður með afgerandi hætti. Sindri S. Kristjánsson, bæjarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sindri S. Kristjánsson Mest lesið Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar