„Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. júní 2026 16:54 Land Rover jepparnir tveir. Klemenz Geir Klemenzson Tveir erlendir ferðamenn á tveimur Land-Rover jeppum hafa keyrt utanvegar við hið minnsta þrjár náttúruperlur og skilið eftir sig djúp hjólför á Emstruleið, Kerlingarfjöll og við Kötlujökul. Lögregla rannsakar málið. „
Ég hef ekki séð svona áður, að menn geri svona hluti hiklaust aftur og aftur, þeir fara þarna inn úr og upp þessa leið þar sem þeir komast ekki lengra, þá snúa þeir við og fara sömu leið til baka, alveg hiklaust út fyrir veg og ekki einu sinni í sömu för og þeir notuðu síðast, þannig að þarna eru staðir þar sem eru fjórar slóðir eftir þessa tvo bíla,“ segir Klemenz Geir Klemenzson trússari í samtali við Vísi. Lögreglan á Suðurlandi staðfestir að málið sé til rannsóknar. Fyrst var vakin athygli á utanvegaakstrinum á Facebook hópnum Bakland ferðaþjónustunnar. Klemenz segist telja mennina tvo vera franska en hann hafði afskipti af þeim þar sem þeir voru að keyra á Emstruleið, frá Einhyrningi og inn að Álftavatni. Á númeraplötum má sjá að bílarnir eru merktir Frakklandi og getgátur Klemenzar því líklega réttar um þjóðerni mannanna. „Til að byrja með skildu þeir ekki einu sinni ensku. Ég talaði þá nógu hátt svo að þeir fóru að skilja ensku, fyrst könnuðust þeir ekkert við þetta og ég trúði öðrum þeirra, hann virtist miður sín en eftir á að hyggja hefur hann bara verið það yfir það að hafa verið böstaður en hinn var bara með kjaft og ég hef aldrei talað svona kjarnyrta íslensku á ensku áður. Ég var verulega reiður, ég skal viðurkenna það.“ Bílarnir skildu eftir sig djúp hjólför. Hvað sagðiru við þá? „Það var svo margt. Ég var ekki kurteis og ég skammast mín ekkert fyrir það.“ Hvað eru þetta margir staðir þar sem þessir menn hafa valdið slíku tjóni? „Þeir staðir sem ég veit um eru Kerlingafjöll, Kötlujökull og núna Fjallabak og ég var að frétta af því að þeir stefna á Þjórsárdalsveg. Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna, það eru allir að fylgjast með þeim.“ Þeirra eina vörn hafi verið sú að ekkert lokunarmerki hafi verið við veginn að Emstruleið. Klemenz segist hafa hringt í Vegagerðina sem hafi brugðist við á klukkutíma. „Og þeim þótti þetta afar miður, þetta hefur yfirleitt alltaf verið merkt. Þetta afsakar hinsvegar alls ekki það sem þessir menn gerðu, því þegar þeir koma að fyrsta skafli sem þeir komust ekki yfir áttu þeir að snúa við. Síðan hefur maður fengið þessar ábendingar um að þeir séu að valda spjöllum víðar.“ Um er að ræða stærðarinnar trukka.
Lögreglumál Utanvegaakstur Umhverfismál Rangárþing eystra Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira