Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Agnar Már Másson skrifar 20. júní 2026 13:56 Sundið hafði verið opið í um þrjá daga. AP/Amirhosein Khorgooi Íranir segjast hafa lokað fyrir umferð um Hormússundið á ný vegna árása Ísraelsmanna í Líbanon og meintra brota Bandaríkjamanna á vopnahléssamkomulagi.
Þetta kemur fram í tilkynningu íranska hersins, samkvæmt ríkismiðlinum Mehr. Þar er haft eftir herforingjum að lokunin sé „fyrsta skrefið“ í svari Írana við því sem þeir kalla brot á vopnahléssamkomulagi milli Bandaríkjanna og Írans, þar sem sextíu daga vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans átti einnig að ná til Líbanons, en þar hafa Ísraelsher og Hezbollah staðið í átökum síðustu daga og ísraelskir hermenn eru enn í suðurhluta landsins. Íranar vara þá sömuleiðis við frekari aðgerðum ef átökunum linnir ekki í Líbanon. Ísraelsk stjórnvöld og Hezbollah-samtökin í Líbanon náðu í gær samkomulagi um vopnahlé en átök í Líbanon hafa reynst veikur hlekkur í friðarviðræðum milli Bandaríkjanna og Íran Friðarviðræður áttu að hefjast í Sviss í gær, föstudag, en þeim var frestað þar sem átök héldu áfram milli Ísraels og Hezbollah í Suður-Líbanon. Steve Witkoff, sérstakur erindreki Hvíta hússins, hélt til Sviss í nótt til þess að eiga í viðræðum við Írani. Auk þess er Jared Kushner, sérstakur sendifulltrúi og tengdasonur Bandaríkjaforseta, þegar kominn til Sviss. Samkvæmt ríkismiðli Líbanon hafa hið minnsta ellefu manns fallið í árásum af hálfu Ísraelshers umhverfis Nabatieh í Líbanon síðasta sólarhringinn. Ísraelsher segist hafa ráðist á tugi skotmarka sem herinn sagði tengjast Hezbollah í kjölfar þess að vígahópurinn hafi skotið ríflega fimmtíu eldflaugum að ísraelskum hermönnum í Líbanon. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, stefnir einnig til Sviss í dag, að sögn heimilda Axios, þar sem enn fremur er tekið fram að íranski ráðherrann hafi sagt bandarískum starfsbræðrum sínum að vopnahlé í Líbanon réði úrslitum um hvort viðræður gætu farið fram.
Íran Bandaríkin Líbanon Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira