„Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sindri Sverrisson skrifar 20. júní 2026 11:45 Gunnlaugur Árni Sveinsson öðlaðist gríðarmikla reynslu á því að spila á Opna bandaríska mótinu, fyrstur Íslendinga. Getty/Christian Petersen „Hann er með allt sem til þarf að bera,“ segir Birgir Leifur Hafþórsson, fyrrverandi atvinnukylfingur, nýlentur heima á Íslandi eftir að hafa fylgst með Gunnlaugi Árna Sveinssyni verða fyrstur Íslendinga til að spila á Opna bandaríska mótinu í golfi karla.
Gunnlaugur Árni er aðeins tvítugur, áhugakylfingur, en náði að vinna sig inn á þetta virta risamót sem talið er það erfiðasta. Shinnecock Hills völlurinn reyndist Garðbæingnum unga erfiður en hann lék seinni níu holurnar í gær þó afar vel, samtals á skolla, en endaði á +21 höggi, jafn öðrum í neðsta sæti. Leika þurfti fyrstu tvo hringi mótsins á samtals +4 höggum til að komast í gegnum niðurskurðinn, eins og Gunnlaugur Árni ætlaði sér, en Birgir Leifur segir ljóst að síðustu dagar muni engu að síður gefa Gunnlaugi afar mikið fyrir framtíðina. „Maður er bara gríðarlega stoltur af stráknum. Hann er búinn að komast ansi langt á stuttum tíma. Búinn að vera tvö ár í háskólanum og fékk núna gríðarlega reynslu í þessari viku. Ég held að hann sé að stækka um 4-5 ár í golfþroska, bara við þetta eina mót. Þessi vika var rosalega mikið álag á hann og mikið af nýjum hlutum. Spennustigið magnaðist upp og svo lendir hann í smábrekku en nær að vinna sig upp úr því og hélt alltaf haus. Hann kom sterkur inn á seinni níu í gær og lokaði mótinu á fínum nótum,“ sagði Birgir Leifur. Birgir Leifur Hafþórsson var um langt árabil besti kylfingur landsins og fylgist nú stoltur með framgöngu Gunnlaugs Árna Sveinssonar.Getty/Matthew Lewis Sjálfur náði Birgir Leifur langt í íþróttinni en þó ekki inn á neitt risamótanna, enda óhætt að segja að þræða þurfi nálaraugað til að komast inn á þau. En má binda vonir við að Gunnlaugur Árni mæti aftur á stærsta sviðið áður en langt um líður? „Mikilvægt og jákvætt stökk inn í framtíðina“ „Hann er með allt sem til þarf að bera. Þarf bara að halda áfram því sem hann er að gera og bæta við einu og einu atriði. Engin risastökk því hann er hundrað prósent á réttu róli. Ég er gríðarlega stoltur af honum. Það er frábært afrek að vera kominn inn á US Open svona ungur og næstu tvö ár verða ennþá meira þroskaferli. Hann getur alltaf bætt sig og þarf að líta á þetta sem gríðarlega mikilvægt og jákvætt stökk inn í framtíðina.“ Gunnlaugur Árni Sveinsson rýnir í áttundu flötina á Shinnecock Hills vellinum í Southampton í New York-fylki.Getty/Mike Mulholland Áhugi Íslendinga á framgöngu Gunnlaugs Árna hefur verið mikill og Birgir Leifur segir það vera eitthvað sem kylfingurinn ungi kunni að nýta sér. „Ekkert mál að endanlega missa hausinn“ „Þetta er vítamínsprauta fyrir hann líka. Hann stefnir hátt og er búinn að vera eins og atvinnumaður hér heima í fimm ár líka. Hann hugsar rosalega vel um sig, er með flott teymi og foreldra á bakvið sig. Það skiptir máli að hann finni stuðninginn og traustið, að einhver grípi mann þegar hlutirnir ganga ekki alveg upp. Það var gaman að vera á staðnum og sjá völlinn sem er náttúrulega alveg stórkostlegur. Það er mjög mikilvægt að hitta brautirnar því flatirnar eru alveg gríðarlega erfiðar. Dræverinn brást Gunnlaugi aðeins en hann hélt svakalega vel á spilunum fyrir utan það. Að koma svo svona sterkur til baka og finna taktinn var held ég rosalega mikilvægt fyrir hann. Hann náði að róa sig og finna spennustigið. Svo sá maður það seinni daginn að menn eins og Dustin Johnson og Jon Rahm misstu taktinn. Það er rosalega stutt á milli á svona golfvöllum,“ sagði Birgir Leifur, ánægður með hvernig Gunnlaugur Árni vann sig upp úr sinni stöðu eftir erfiðar fyrstu 27 holur á mótinu. „Það er ekkert mál að endanlega missa hausinn en þetta sýnir hvað hann er þroskaður. Mikið hrós á teymið líka sem hefur unnið með honum öll þessi ár, í GKG og GSÍ, og ég veit að Gauti Grétars [sjúkraþjálfari] er búinn að vinna mikið með honum í líkamlega þættinum líka. Hann er mjög fullmótaður kylfingur, svona ungur að aldri, ekki síst miðað við að alast upp á Íslandi þar sem ekki er hægt að spila golf tólf mánuði á ári. Hann hefur núna verið í tvö ár í bandaríska háskólagolfinu og er líka í frábærri umgjörð þar.“
Golf Opna bandaríska Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir LIV-mótaröðin í uppnámi en Rory Mcllroy ekki spenntur að fá kylfinga þaðan Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Sigurinn sögulegi breytt miklu fyrir Óliver: „Mjög mikill heiður“ Valinn í stærstu liðakeppni heims dögum eftir sigurinn McIlroy áhyggjufullur eftir erfiða reynslu Óliver var með funheitan pútter Táningur sló 470 metra högg á DP World Tour Óliver Elí vann Opna breska áhugamannamót pilta Óliver Elí vann Evrópumeistarann og komst í úrslit Aflýsa síðustu keppninni og framtíð mótaraðarinnar í uppnámi Óliver kominn í undanúrslit á sterku móti Efnilegur ástralskur kylfingur lést aðeins átján ára Draumur Bolvíkinga rætist gegn risunum í íslensku golfi Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti „Þegar ég var yngri var bara gert grín að mér að ég væri í golfi“ Gunnlaugur Árni hætti keppni á miðjum hræðilegum fyrsta hring Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Íslandsmeistari annað árið í röð eftir algjöra yfirburði Guðrún Brá Íslandsmeistari og föðurbetrungur Gífurleg spenna á Íslandsmótinu í golfi 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Dagbjartur eykur forystuna Reynir á kylfinga með öðrum hætti á Íslandsmótinu í dag Fimmtán ára með besta hring dagsins á Íslandsmótinu Guðrún Brá lék best alla og er komin í efsta sætið Dagbjartur áfram í frábærum gír í titilvörninni „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Sjá meira