Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Kjartan Kjartansson skrifar 18. júní 2026 14:38 Pólskir lögreglumenn kanna vettvang þar sem rússneskur skopmyndateiknari var skotinn til bana um hábjartan dag í bænum Biala Podlaska á mánudag. Vísir/EPA Morð á rússneskum skopmyndateiknara og gagnrýnanda Rússlandsforseta í Póllandi ber öll merki pólitísks launmorðs, að mati forsætisráðherra Póllands. Maður með georgískt vegabréf hefur verið handtekinn vegna morðsins.
Robert Kuzovkov, sem gekk undir dulnefninu Semyon Skrepetsky, var skotinn til bana um hábjartan dag í pólska bænum Biala Podlaska, um þrjátíu kílómetra frá landamærum Póllands að Belarús. Skopmyndateiknarinn var þekktur fyrir gagnrýni sína og háðsádeilu á Vladímír Pútín, forseta Rússlands, að því er segir í frétt evrópska blaðsins Politico. Karlmaður á ferugsaldri var handtekinn, grunaður um morðið á Kuzovkov. Hann var með georgískt vegabréf, að sögn lögreglu í Lublin-héraði og Donald Tusk, forsætisráðherra. Tusk sagði í gær að allt benti til þess að drápið á Kuzovkov hafi verið pólitískt launmorð. Yfirvöld væru þó enn að safna sönnunargöngum og vísbendingum um það. „Ef það kemur í ljós að Rússland hafi staðið að þessari árás væri litið á það sem ríkishryðjuverk,“ sagði Tusk sem sagði síðar á samfélagsmiðli að leitað væri að þeim sem skipuðu fyrir um morðið. Lífshættulegt að hallmæla Pútín Fjöldi andófsmanna og andstæðinga Pútíns hefur látist við voveiflegar aðstæður á undanförnum árum, bæði innan og utan Rússlands. Fyrir sex árum skaut rússneskur útsendari fyrrrverandi uppreisnarmann frá Téténíu til bana um hábjartan dag í almenningsgarði í Berlín. Morðingjanum var sleppt í umfangsmestu fangaskiptum á milli Rússlands og vestrænna ríkja frá því að kalda stríðinu lauk. Pútín tók fagnandi á móti honum við komuna til Rússlands. Þá eitruðu rússneskir útsendarar fyrir Alexander Litvinenko, rússneskum fyrrverandi leyniþjónustumanni, með geislavirku efni í London árið 2006. Þeim tókst að ráða Litvinenko bana. Rússnesku leyniþjónustumönnunum sem eitruðu fyrir Sergei Skripal, öðrum fyrrverandi njósnara, og dóttur hans í Salisbury á Englandi árið 2018 tókst aftur á móti ekki ætlunarverk sitt. Þeim tókst þó að drepa breska konu sem komst í snertingu við leifarnar af taugaeitrinu sem þeir beittu í tilræðinu og skildu eftir á víðavangi. Einnig er talið að rússnesk stjórnvöld hafi staðið fyrir því að eitrað var fyrir Alexí Navalní, leiðtoga rússnesku stjórnarandstöðunnar, árið 2020. Hann lést í rússnesku fangelsi árið 2024.
Rússland Pólland Erlend sakamál Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum. 14. febrúar 2026 14:59 Telja Pútín siðferðislega ábyrgan fyrir dauða breskrar konu Rannsóknarnefnd í Bretlandi komst að þeirri niðurstöðu í dag að Vladímír Pútín, forseti Rússlands væri siðferðislega ábyrgur fyrir dauða breskrar konu sem lést af völdum taugaeiturs sem var beitt gegn rússneskum uppgjafarnjósnara árið 2018. Rússneska leyniþjónustan sem stóð að tilræðinu var sett á þvingunarlista í dag. 4. desember 2025 15:13 Stöðvuðu ætlað tilræði við rússneskan andófsmann í Frakklandi Fjórir menn voru handteknir í Frakklandi, grunaðir um að leggja á ráðin um að ráðast á rússneskan aðgerðasinna í útlegð. Frönsk yfirvöld hafa ekki greint frá þjóðerni mannanna eða hvort þeir séu taldir útsendrar erlendrar leyniþjónustu. 17. október 2025 11:48 Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Embættismenn á Vesturlöndum segja að tvær eldsprengjur sem sendar voru með DHL, hafi verið liður í ætlun leyniþjónustu Rússa um að kveikja elda um borð í frakt- eða farþegaflugvélum á leið til Bandaríkjanna og Kanada. Fjórir menn hafa verið handteknir í Póllandi vegna málsins. 4. nóvember 2024 22:21 Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira
Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri Eitrað var fyrir Alexei Navalní helsta andstæðingi Vladímírs Pútín Rússlandsforseta með froskaeitri. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum. 14. febrúar 2026 14:59
Telja Pútín siðferðislega ábyrgan fyrir dauða breskrar konu Rannsóknarnefnd í Bretlandi komst að þeirri niðurstöðu í dag að Vladímír Pútín, forseti Rússlands væri siðferðislega ábyrgur fyrir dauða breskrar konu sem lést af völdum taugaeiturs sem var beitt gegn rússneskum uppgjafarnjósnara árið 2018. Rússneska leyniþjónustan sem stóð að tilræðinu var sett á þvingunarlista í dag. 4. desember 2025 15:13
Stöðvuðu ætlað tilræði við rússneskan andófsmann í Frakklandi Fjórir menn voru handteknir í Frakklandi, grunaðir um að leggja á ráðin um að ráðast á rússneskan aðgerðasinna í útlegð. Frönsk yfirvöld hafa ekki greint frá þjóðerni mannanna eða hvort þeir séu taldir útsendrar erlendrar leyniþjónustu. 17. október 2025 11:48
Útsendarar GRU sagðir hafa sent eldsprengjur með flugvélum Embættismenn á Vesturlöndum segja að tvær eldsprengjur sem sendar voru með DHL, hafi verið liður í ætlun leyniþjónustu Rússa um að kveikja elda um borð í frakt- eða farþegaflugvélum á leið til Bandaríkjanna og Kanada. Fjórir menn hafa verið handteknir í Póllandi vegna málsins. 4. nóvember 2024 22:21