Skopmyndateiknari skotinn til bana Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 16. júní 2026 23:11 Múndering Skrepetskíj á mótmælagjörningi sínum í Berlín fyrir helgi. Á bekknum sést ein skopmynda hans. AP Rússneskur listamaður mótmælti fyrir utan rússneska sendiráðið í Berlín á föstudaginn og fannst í dag skotinn til bana á bílastæði í nágrenni heimilis síns í Póllandi.
Robert Kuzovkov hét maðurinn en gekk undir listamannanafninu Semjon Skrepetskíj. Hann var 44 ára gamall þegar hann lést og lætur eftir sig eiginkonu og fimm börn. Samkvæmt pólskum yfirvöldum fannst Skrepetskíj látinn skammt frá heimili sínu í bænum Biała Podlaska í austurhluta Póllands. Hann hafði verið skotinn ítrekað af stuttu færi, meðal annars í höfuðið. Hann lést nær samstundis. Tveir hvítrússneskir ríkisborgarar voru skömmu síðar handteknir í nágrenni hvítrússneskrar ræðismannaskrifstofu í bænum. Aðild þeirra að morðinu á Skrepetskíj er til rannsóknar. Skrepetskíj var helst frægur fyrir skopmyndir sem hann teiknaði af valdamönnum í Rússlandi og nágrannaríkjum. Þegar hann mótmælti í Berlín fyrir helgi hélt hann á mynd sem hann hafði gert af Jósef Stalín með pípu í einni hendi og dvergvaxna útgáfu af Vladímír Pútín Rússlandsforseta í hinni. Hann hefur einnig gert álíka grín að Alexander Lúkasjenkó forseta Hvítarússlands, Ramzan Kadyrov leiðtoga Téténíu en rússneskur andspyrnuleiðtogar á borð við Alexej Navalní hafa einnig orðið fyrir barðinu á honum í gegnum árin.
Rússland Pólland Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira