Sérsveitarmaður lagði hné á háls manns Agnar Már Másson skrifar 16. júní 2026 12:59 Myndbandsupptaka frá lögreglumanni sýndi að hné sérsveitarmanns var lagt á háls manns í nokkrun tíma, að sögn nefndarinnar. Vísir/Vilhelm Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hefur sent erindi til héraðssaksóknara vegna framgöngu sérsveitarmanns sem er sakaður um að hafa lagt hné á háls manns við handtöku fyrir utan skemmtistað á Akureyri.
Í kvörtunarerindi sem barst Nefnd um eftirlit með lögreglu í febrúar kom fram að maðurinn hefði verið handtekinn og beittur óþarfa hörku þann 17. júní 2023. Í erindinu sagði að maðurinn hefði verið rifinn niður í jörðina „þrátt fyrir að hafa ekki gerst brotlegur við lög“ og að sérsveitarmenn hefðu svo lagst „með allan þungann með hné í hálsi“. Samkvæmt bráðamóttökuvottorði var maðurinn undir áhrifum áfengis og kemur fram að hann muni eftir „falli og missti ekki meðvitund“. Myndbandsupptökur staðfestu það að hné sérsveitarmanns hafi verið á hálsi mannsins í nokkurn tíma, að því er fram kemur í ákvörðun nefndarinnar, en ekki voru til staðar upptökur úr búkmyndavélum sérsveitarmanna. Æstir bræður fyrir utan skemmtistað Í atvikalýsingum lögreglu segir að aðfaranótt laugardagsins 17. júní 2023 hafi tilkynning borist um slagsmál fyrir utan skemmtistaðinn Vamos. Þegar lögreglu bar að garði hafi dyravörður bent á karlmann sem hafi verið með blóðnasir, sjáanlega æstur. Sá reyndist vera bróðir mannsins sem hér um ræðir og báðir voru þeir klæddir í merkt leðurvesti. Bróðir mannsins hafi brugðist illa við þegar hann hafi verið rekinn út af skemmtistaðnum og meinað að fara aftur inn. Maðurinn hafi komið til að róa aðstæður en þá hafi þeim bræðrum lent saman, sem hafi orðið til þess að bróðirinn var tekinn lögreglutökum. Maðurinn mun hafa reynt að skerast í leikinn þegar bróðir hans var handtekinn og sérsveit brást við með því að reyna að fjarlægja manninn af vettvangi. Þá mun hann einnig hafa brotist um í tökum lögreglu og lögregla segir að bera hafi þurft hann í fangaklefa og halda honum niðri við öryggisleit, þar sem hann hafi streist talsvert á móti svo þrjá eða fjóra lögreglumenn hafi þurft til að halda honum niðri. Við það hafi keðja slitnað af armbandsúri hans en maðurinn segir úrið hafa verið rifið af sér. Í handtökuskýrslu sérsveitar segir að kvartandi hafi hótað að drepa lögreglumennina og hrækt á þá. Gátu ekki útilokað refsiverða háttsemi Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra taldi aðgerðir lögreglu lögmætar og hafnaði bótaskyldu, en benti á að kvörtunin snerist fyrst og fremst um sérsveit ríkislögreglustjóra. Ríkislögreglustjóri lagði fram handtökuskýrslu vegna málsins en gat ekki útvegað búkmyndavélaupptökur af sjálfri handtökunni og voru þær því ekki til í gögnum málsins. Ein upptaka frá lögreglumanni á Norðurlandi eystra sýndi aftur á móti hné sérsveitarmanns á hálsi mannsins í nokkurn tíma, að sögn nefndarinnar. Vegna skorts á upptökum af sjálfri handtökunni var ekki unnt að útiloka mögulega refsiverða háttsemi lögreglumanna. Erindinu er því vísað til héraðssaksóknara til frekari meðferðar.
Lögreglan Lögreglumál Akureyri Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira