Neytendur

Að fólk skilji garðhús­gagna­búslóðirnar eftir heima

Freyja Þórisdóttir skrifar
Kaleo hélt tónleika þann 26. júlí í Vaglaskógi en það voru þeirra fyrstu tónleikar á Íslandi síðan árið 2015, uppselt varð á tónleikana á örskotsstundu. Jakob segir tónleikana um helgina vera ríflega tvöfalt stærri í sniðum.
Kaleo hélt tónleika þann 26. júlí í Vaglaskógi en það voru þeirra fyrstu tónleikar á Íslandi síðan árið 2015, uppselt varð á tónleikana á örskotsstundu. Jakob segir tónleikana um helgina vera ríflega tvöfalt stærri í sniðum. Vísir/Vilhelm/Viktor Freyr

Tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á Þingvöllum um næstu helgi og bera yfirskriftina Bergmál. Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að stólar, regnhlífar og veitingar yrðu ekki leyfð á svæðinu. Jakob Frímann tónleikahaldari segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu þó ekki sé gert ráð fyrir því að fólk flytji heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér.

Í tölvupósti sem sendur var á væntanlega tónleikagesti kom fram að af öryggisástæðum myndi lögregla ekki heimila gestum að taka með tjaldstóla né regnhlífar en einnig væri ekki leyfilegt að taka drykki og veitingar inn á tónleikasvæðið. Hvorki verði hestaumferð leyfð á svæðinu né gæludýr.

Þetta hefur hleypt illu blóði í margan tónleikagestinn og nokkrir hafa reynt að losa sig við miða sína. 

Sumir hafa nýtt sér vettvang Facebook-hópa til að lýsa yfir áhyggjum af því að þurfa að sitja á teppi á jörðinni. Aðrir segjast ekki treysta því að matarvagnar yrðu með nægt úrval fyrir börn eða fólk með ofnæmi og óþol.

Veðurfræðingar spá rigningu

Veðurfræðingurinn Birgir Örn Höskuldsson segir útlit fyrir „fyrirtaks regnhlífaveður“ á Þingvöllum á laugardaginn, en þangað munu um tuttugu þúsund manns leggja leið sína á stórtónleika Kaleo. Hann segir einnig að þrátt fyrir að spáin sé vís með að breytast sýni nýjustu spár að það verði skúraveður á tónleikasvæðinu en en ekki hvasst.

Sem sagt ágætis veður?

Jökull Júlíusson forsprakki Kaleo er án efa ein stærsta stjarna íslensks tónlistarlífs.vísir/viktor freyr

„Já, spáin er vís með að breytast eitthvað á næstu dögum en síðustu spákeyrslur sýna að það verði skúraveður á tónleikasvæðinu, sem er eðlilegt fyrir þennan árstíma. Virðist ekki verða mikill vindur og hitinn svona um tíu gráður líklega,“ segir hann og ítrekar að það verði gott að vera viðbúinn rigningu og því „óþarfi að banna regnhlífar“.

Að fólk burðist ekki með heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér

Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari átti í dag langan fund með öryggisfulltrúum, þetta eru vikulegir fundir.

„Þetta eru vikulegir fundir öryggisráðsins sem eru hluti af því að skipuleggja út í hörgul svona viðburð. Allir hlutir eru ræddir til hlítar og þannig fyrirbyggjum við það sem óvænt kann að koma upp á. Almennt get ég sagt að það liggur mikill metnaður á bak við að gera þetta að frábærum viðburði. Við njótum dásamlega þjóðgarðsins með fremstu tónlistarmönnum okkar og svo er verið að búa til umhverfi sem verður hugnanlegt og öll aðstaða verður eins og best er á kosið.“

Stuðmaðurinn Jakob Frímann er potturinn og pannan í skipulagningu viðburðarins. vísir/

Nú hefur verið rætt manna á meðal hvort gestum sé heimilt að taka með tjaldstóla og regnhlífar og svo drykki og veitingar inn á tónleikasvæðið?

„Það er gert ráð fyrir að það verði hægt að setjast víða, öryggisráðið og fulltrúarnir hafa slæma reynslu af hörðum hlutum á borð við tjaldstóla en það verða annars konar stólar í boði, vörubrettum verður víða fyrir komið þar sem hægt er að tylla sér. Betra er að til staðar séu sæti fremur en að fólk sé að burðast með heilu garðhúsgangabúslóðirnar með sér. En það er eðlilegt að fólk velti fyrir sér ýmsum hlutum, fæstir hafa komið á Þingvöll, ekki síðustu tíu árin.“

Ekki leitað að sómasamlokum í veskjum fólks

En hvað með nesti? Verður fólki meinað að hafa slíkt með sér inn á tónlistarstaðinn?

„Það er ekki gert ráð fyrir að þú komir með veitingar inn á veitingahús og sama er með þetta. Það verður veitingasala á staðnum, en það verður ekki leitað að sómasamlokum í veskjum fólks ef sú er spurningin. En það eru tilmæli um að fólk sé ekki að taka með sér eitthvað drasl þarna inn, það er sérstakur geiri sem annast þetta. Allt er í föstum skorðum en það þýðir ekki að þarna verði fasismi sem ráði, allir eiga að geta notið dásemdanna saman.“

Jakob Frímann hefur komið víða við og þarna er hann á þingi. Hér er hann hins vegar í essinu sínu, að skipuleggja mannfagnaði og tónleika.vísir/vilhelm

Miðasala gengur mjög vel að sögn Stuðmannsins.

„Það stefnir óðum í að það verði uppselt á viðburðinn. Þetta gerðist mjög hratt loksins þegar tilkynnt var um þetta. Forsalan fór á einni og hálfri mínútu, 17.500 miðar og svo hefur þetta verið að mjatlast út. Það verður uppselt.“

Reyndasti mannskapur landsins í utanumhaldi

Og Jakob segir að allir umferðar- og öryggisþættir séu í góðu lagi.

„Aldrei hefur fjölmennari sveit og reyndari verið kölluð til en núna.“

Jakob Frímann segir Þingvelli vannýttan stað til mannamóta. Hugur Þingvallanefndar standi til að þarna verði garðurinn okkar allra, fjölsóttari en verið hefur en kannanir leiða í ljós að ekki séu nema um fimm prósent gesta eigendur staðarins.

„Þetta verður eins fallegt og hægt er að hugsa sér. Við höfum ákveðið viðmið sem er Vaglaskógur í fyrra, einstaklega hlýleg og eftirminnileg stemmning sem byggðist á sams konar dagskrárgerð sem segir okkur svo til um hvers konar fólk leggur leið sína á viðburðinn: Þroskuð músík fyrir þroskaða áhorfendur á öllum aldri.“

Og Jakob Frímann segir að þeim tilmælum sé beint til gesta að þeir nálgist armbönd sín og bílastæðapassa í 66 gráðum norður á fimmtudag og föstudag. „Þetta er lykilatriði til að enginn þurfi að bíða í röð. Sækja í 66 gráður norður og á Hafnartorgi á fimmtudag og föstudag og þeir sem hafa þetta fljúga í gegn.“

Einhverjir stærstu tónleikar Kaleo til þessa

Í viðtali sem Jakob fór í á Bylgjunni í lok maí ásamt Jökli Júlíussyni, söngvara Kaleo, höfðu þeir orð á því að tónleikarir færu fram á einum helgasta stað landsins. Kaleo hefur spilað víða um heim síðustu ár en Rubin Pollock gítarleikari Kaleo sagði, í samtali við fréttastofu Sýnar, tónleikana á Þingvöllum vera „stærsta og magnaðasta verkefni sem við höfum tekið þátt í“. 

En meðal annarra tónlistaratriða sem koma fram á Þingvöllum á laugardaginn eru Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK og Árný Margrét. Heimild er fyrir allt að tuttugu þúsund gestum á svæðinu.


Tengdar fréttir

„Beinin af Jónasi skipta and­skotans engu máli“

Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, telur fráleitt að menn setji sig upp á móti tónleikahaldi á Þingvöllum en að sama skapi er honum mjög í nöp við að fólk sé að atast í jarðneskum leifum Jónasar Hallgrímssonar.

Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo

Þingvallanefnd hefur borist tvö erindi vegna fyrirhugaðra tónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar. Formaður nefndarinnar segir að erindin verði tekin fyrir en búið sé að gera ýmsar ráðstafanir svo engar raskanir verði á svæðinu.

Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss

Gert er ráð fyrir að tuttugu þúsund gestir sæki tónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Tónleikarnir fara fram á grasflötum fyrir neðan Öxarárfoss og þjóðgarðsvörður segir heilan her fólks munu gæta þess að náttúran beri engan skaða af. Hann kannast ekki við tónleikaumsóknir frá Coldplay eða U2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×