Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2026 16:40 Máni Austmann Hilmarsson og félagar í Fylki eru komnir í undanúrslit bikarsins. Vísir/Hulda Margrét Lengjudeildarlið Fylkis tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta eftir 4-2 heimasigur á Gróttu í framlengdum Lengjudeildarslag í Árbænum.
Þetta var lokaleikur átta liða úrslitanna og vitað var fyrir fram að sigurvegarinn myndi mæta Aftureldingu á heimavelli í undanúrslitum. Lengjudeildarliðin tvö eru því bara einum leik frá bikarúrslitaleiknum á Laugardalsvellinum. Grótta var 1-0 yfir nær allan seinni hálfleikinn en skoraði sjálfsmark á 89. mínútu og því varð að framlengja leikinn. Fylkismenn skoruðu þrjú mörk í framlengingunni og tryggðu sér sæti í undanúrslitaleiknum. Tristan Freyr Ingólfsson kom Gróttu yfir í uppbótartíma fyrri hálfleiks með glæsilegu skoti rétt fyrir utan teig. Tristan Freyr er að koma til baka eftir fjögurra ára meiðslamartröð og hefur heldur betur komið sterkur inn hjá Gróttu. Þetta var hans fjórða mark í bikarnum í sumar. Gróttumaðurinn Caden Robert McLagan varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark í lok venjulegs leiktíma en Aron Snær Guðbjörnsson kom síðan Fylki í 2-1 í fyrri hluta framlengingarinnar. McLagan bætti fyrir sjálfsmarkið með því að jafna metin í 2-2 en það dugði ekki til því Fylkismenn áttu lokaorðið. Orri Sveinn Segatta og Kári Sigfússon tryggðu Árbæjarliðinu 4-2 sigur og Heimir Guðjónsson er búinn að koma Fylki í undanúrslit bikarsins á sínu fyrsta ári sínu með liðið.
Fylkir Grótta Mjólkurbikar karla Mest lesið „Eyðileggur íþróttina“ Sport „Mér líður eins og ofurkonu núna“ Sport „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Körfubolti Þrótturum mistókst að komast á toppinn Íslenski boltinn Gylfi: „Erfitt að lenda undir eftir tíu mínútur“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Íslenski boltinn Fyrstur til að vinna fjörutíu titla með einu félagi Fótbolti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Íslenski boltinn Íslendingaliðin Twente og Midtjylland brunuðu áfram í Evrópu Fótbolti Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Sjá meira