Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Bjarki Sigurðsson og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 11. júní 2026 19:25 Sólveig Anna er formaður Eflingar. Vísir/Anton Brink Formaður Eflingar segir áhugaleysi þingmanna um að breyta biðlaunareglum vera sorglegt. Það sé ósanngjarnt að þingmenn fái greiddar milljónir fyrir að segja upp í vinnunni.
Biðlaun þingmanna eru aftur í umræðunni eftir afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún á rétt á biðlaunum í allt að sex mánuði og gæti heildargreiðslan numið tæpum tíu milljónum. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er einnig á biðlaunum á meðan hún bíður eftir því að taka við starfi sendiherra í London í byrjun ágúst. Guðbrandur Einarsson þáði biðlaun í þrjá mánuði á þessu ári eftir afsögn vegna tilraunar til að kaupa vændi árið 2012 og Bjarni Benediktsson þáði einnig biðlaun á þessu ári. Formaður Eflingar segir þessar háu upphæðir fáránlegar. „Þessi mikla sjálftaka sem er ástunduð í efri lögum íslensks samfélags er til háborinnar skammar fyrir okkur öll,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Svona mál komi reglulega upp. „Almenningur er yfirleitt á þeirri skoðun að þetta sé ekki eðlilegt en svo breytist ekki neitt og væntanlega er það vegna þess að þegar fólk er komið í þessa stöðu að það sjálft er með þessa möguleika að vera þiggjendur þessara biðlauna, eða hvað við viljum kalla þetta, þá hverfur því miður löngunin til þess að breyta kerfunum og það er auðvitað mjög sorglegt.“ Feitur starfslokasamningur og biðlaun í stéttinni Sama gildi innan verkalýðshreyfingarinnar. „Við sjáum ný dæmi um menn sem voru í forystusveit verkalýðshreyfingarinnar og svo kjörnir inn á Alþingi og fengu með sér annars vegar feitan starfslokasamning og hins vegar einhvers konar biðlaun þar sem maður sem var kosinn á þing fyrir Samfylkinguna var kominn á þing og byrjaður að þiggja laun sem þingmaður eftir lýðræðislega kosningu en var samt áfram á launum hjá sínu stéttarfélagi að ég held í sex mánuði,“ segir Sólveig Anna. Í fréttinni í spilaranum kemur fram að Guðbrandur eigi rétt á biðlaunum í sex mánuði. Það er ekki rétt. Hann þáði biðlaun í febrúar, mars og apríl og á ekki rétt á frekari launum. Hún vísar þar í kjör bæði Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar, þingmanna Samfylkingarinnar sem var áður framkvæmdastjóri Rafiðnaðarsambandsins, og Ragnars Þórs Ingólfssonar, ráðherra Flokks fólksins og fyrrverandi formanns VR. „Svo sjáum við líka nýtt dæmi hjá VR þar sem formaður VR ásamt stjórn hækkar einfaldlega launin í það minnsta um tólf prósent og eflaust miklu hærra. Aftur, ég held að allur almenningur og allt venjulegt launafólk fyllist einhvers konar ógeði á því þegar fólk hegðar sér með þessum hætti,“ segir hún. Heldur þú að þetta muni einhvern tímann breytast? „Á þessum tímapunkti ætla ég að segja að ég sé ekkert sérstaklega bjartsýn eða jákvæð.“
Alþingi Stéttarfélög Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira