Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð Kjartan Kjartansson skrifar 11. júní 2026 10:09 Bláriddari sniglast inn á á milli postulínskórals og ægisdrekks á Háfadjúpi, innan þess svæðis sem Hafró vill friðlýsa. Hafrannsóknastofnun Mestu gljúfurkerfi íslenska landgrunnsins og kóralrif eru innan tæplega 33 þúsund ferkílómetra hafsvæðis sem Hafrannsóknastofnun leggur til að verði verndað. Verndunin er sögð geta haft einhver áhrif á botnvörpuveiðar.
Hafró leggur til að landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri verði friðlýstar til þess að koma í veg fyrir hnignun búsvæða og vistkerfa. Slík vernd þýddi að allar athafnir sem snertu hafsbotninn eða gætu haft áhrif á hann yrðu bannaðar. Svæðið er rúmir 32.700 ferkílómetrar að flatarmáli og er um 4,3 prósent af efnahagslögsögu landsins. Nái friðlýsingin fram að ganga næði hlutfall friðlýstra svæða í lögsögunni 5,9 prósentum en íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til þess að vernda þrjátíu prósent lands, ferskvatns og hafs fyrir lok áratugsins. Landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadýpi í vestri til Papagrunns í austri sjást hér afmarkaðar í röndóttu.Hafrannsóknastofnun Hafsbotninn á svæðinu er sagður einstakur við hafsvæði Íslands. Gljúfrakerfi setji svip sinn á hann með giljum og hryggjum auk bratts landsgrunnskantsins. Þá hafi svæðið að geyma kóralrif, kóralgarða, svampabreiður og sæfjaðragarða. Sæfjaðrir eru kóraltegund. Einu kóralrifin sem eru eftir við landið Kóralrif við Íslandi eru nánast aðeins á landgrunninu suður af landinu og í kanti landgrunnsins suður og vestur af landi, að því er kemur fram í tilkynningu Hafró um ráðgjöfina. Meirihluti kórarifja ofan á landgrunnsbrúninni sé innan veiðislóðar. Meirihluti þeirra hafi þannig verið stórlega eyðilögð og aðeins lítill hluti þeirra lifandi. „Með friðlýsingu svæðisins er vonast til þess að kóralsvæði við landgrunnskantinn og í landgrunnshlíðinni verði ekki fyrir meiri skaða en þegar hefur orðið,“ segir stofnunin. Kóralbreiða og svampar í landgrunnskatninum.Hafrannsóknastofnun Einnig eru vonir bundnar við að hægt verði að endurheimta kóralrif á Öræfagrunni með friðlýsingunni og stækkun fyrri verndarsvæða í Skaftárdjúpi og Hornafjarðardjúpi. Innan við prósent af ársafla í botnvörpu Hafró metur áhrif friðlýsingar á svæðinu lítil fyrir veiðar með línu og netum en heldur meiri fyrir fiskibotnvörpu. Að miðgildi hafa 0,6 prósent ársafla í botnvörpu síðustu tíu árin komið af svæðinu sem Hafró vill friðlýsa. Stök ár hefur hlutfallið náð einu prósenti af ársaflanum.
Hafið Umhverfismál Hafrannsóknastofnun Sjávarútvegur Sameinuðu þjóðirnar Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðgangna til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Sjá meira