Nær tvöföldun umsókna um meistaranám Áróra L Davíðsdóttir skrifar 8. júní 2026 14:49 „Sérstaka athygli vekur að umsóknum á meistarastigi fjölgaði um 87,6% á milli ára. Þar vegur þungt aukning umsókna við Kennaradeild, Lagadeild og Viðskiptadeild,“ segir í tilkynningu frá Háskólanum á Akureyri. Háskólinn á Akureyri Umsóknum um nám við Háskólann á Akureyri fjölgaði um 8,5% milli ára.
Alls bárust Háskólanum á Akureyri 2.343 umsóknir um nám fyrir haustmisserið 2026, sem samsvarar 8,5 prósenta aukningu á milli ára. Mikil fjölgun varð á umsóknum um nám á meistarastigi en þær jukust um 87,6 prósent frá því í fyrra. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá háskólanum. Í haust verður boðið upp á nám á bakkalárstigi í lagareldi við Auðlindadeild og í samstarfi við Háskólann á Hólum en alls bárust 28 umsóknir í námið. „Lagareldi er ört vaxandi atvinnugrein á Íslandi og hefur þörf fyrir sérhæfða menntun aukist verulega á síðustu árum. Umsóknarfjöldinn bendir til þess að nýja námsleiðin mæti skýrri þörf í atvinnulífinu,“ segir í tilkynningunni. Mikil aðsókn er í nám við hjúkrunarfræðideild en umsóknum við deildina fjölgaði um rúm 10 prósent á milli ára og er grunnnámið í hjúkrunarfræði eitt það eftirsóttasta í Háskólanum á Akureyri. „Það segir sína sögu að 329 einstaklingar hafi sótt um hjúkrunarfræði við HA í ár þrátt fyrir að aðeins 75 stúdentar geti haldið áfram að loknu fyrsta misseri. Þessar umsóknartölur undirstrika jafnframt hversu mikilvægt er að hér verði byggt upp fullbúið hermisetur sem myndi gera okkur kleift að bjóða fleiri stúdentum námspláss að loknum klásus. Það leikur enginn vafi á því hve mikilvægt það er fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor Háskólans á Akureyri.
Akureyri Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira