Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu Tómas Arnar Þorláksson skrifar 5. júní 2026 16:24 Ráðherrabústaðurinn sýndur eftir breytingar. vísir/vilhelm Endurbætur á ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu kostuðu alls um 415 milljónir króna. Framkvæmdirnar hófust haustið 2023 og stóðu yfir í rúmlega tvö og hálft ár. Veggfóður sem prýðir veggi hússins kostaði rúmlega nítján milljónir, ljós og lampar kostuðu samtals ellefu milljónir og kaup á stólum og sófum kostuðu rúmlega 23 milljónir. Verkið var ekki boðið út.
Þetta kemur fram í skriflegu svari frá forsætisráðuneytinu við fyrirspurn fréttastofu. Verkið var samþykkt og hófst í tíð Katrínar Jakobsdóttur sem forsætisráðherra. Kostnaðaráætlun sem var unnin á síðasta ári gerði ráð fyrir kostnaði upp á um 336 milljónir en heildarkostnaður við verklegar framkvæmdir nam í raun 361,9 milljónum króna. Við þennan kostnað bætist kostnaður við innkaup á húsgögnum, eldhúsinnréttingum og öðrum búnaði sem nemur 54,5 milljónum. Heildarkostnaður nemur því rúmlega 415 milljónum. „Aukinn kostnaður skýrist af því að framkvæmdir á suðurgafli hússins reyndust umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Fjarlægja þurfti steypta útveggi og vegna fúa urðu viðgerðir og nýsmíði á tréverki og burðarbitum yfir garðskála mun meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá þurfti að stífa suðurgaflinn með timbur- og stálvirki til jarðskjálftastyrkingar og vegna vindálags,“ segir í svari forsætisráðuneytisins. Ný húsgögn prýða nú ráðherrabústaðinn.vísir/vilhelm Umfangsmiklar framkvæmdir við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu hófust haustið 2023. Allar framkvæmdir við endurgerð hússins voru unnar í nánu samstarfi við Minjastofnun Íslands. Hönnuðir eru Plús arkitektar og Steinunn Sigurðardóttir, Ferill verkfræðistofa, Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf., Lota verkfræði- og ráðgjafarstofa og Kvarði ehf. Verkið var ekki boðið út. „Verkið var ekki boðið út vegna þess að lagnaleiðir í gömlu húsi sem þessu þurfti að finna samhliða verkinu í samvinnu hönnuða, verktaka og húseiganda.“ Steinunn sagði í samtali við fréttastofu í apríl að hún væri hvað stoltust af veggfóðrinu. „Þetta er ofið efni, í gömlum húsum var þetta þannig og við náðum því eftir langan tíma að finna það en mikið lifandi, undur og ósköp er þetta fallegt,“ sagði hún en kostnaður við veggfóður var kr. 19.510.620. Steinunn Sigurðardóttir hönnuður kom að endurbótum ráðherrabústaðsins við Tjarnargötu.vísir/vilhelm Kostnaður vegna kaupa á stólum og sófum var kr. 23.464.166. Um er að ræða tvo Alvar Aalto 400 „Tank“ hægindastóla, þrjá Platner stóla, Eero Saarinen Excecutive stól, tvo tveggja sæta POET sófa, MODEL 46 sófa, sjö Svanurinn stóla, tvo tveggja sæta Lillemor sófa, 28 Kjarval stóla, fjóra France stóla og ellefu AJ Oxford stóla. Kostnaður vegna kaupa á ljósum og lömpum var kr. 11.084.428. Um er að ræða tvo Alvar Aalto 1954 gólflampa, þrjú Ornametrica loftljós, þrjá PH 80 gólflampa, Kaiser borðlampa, Köngul 480 hengilampa, þrjá Köngul 680 hengilampa, AJ vegglampa, tvö PH 3/2 loftljós, Arktek AA 110 ljós, tvö Arktek AA Beehive ljós, tvö Arktek A 662 AA loftljós, átta Salerno ljós/lampar og Mashiko 300 messing ljós. Kostnaður vegna kaupa á borðum og stöplum (undir listaverk) var kr. 3.009.726. Um er að ræða sófaborð úr aski, þrjú Platner-sófaborð, tvö Eyetable-borð, gangaborð og þrjá stöpla. Ráðherrabústaðurinn.vísir/vilhelm
Hús og heimili Húsavernd Reykjavík Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira