Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. júní 2026 13:56 Bjórinn er vinsæll í mörgum aldurshópum í Danmörku. Justin Sullivan/Getty Dönsk lögregluyfirvöld eru komin með nóg af hegðun drukkinna ungmenna í Árósum, þá sérstaklega í tívolíi borgarinnar á föstudagskvöldum. Framkvæmdastjóri tívolísins segist taka undir með áhyggjum lögregluyfirvalda en segir ekki á dagskránni að hækka aldur þeirra sem hleypt er inn í tívolíið.
Danska ríkisútvarpið fjallar um málið og segir að kornungir unglingar flykkist nú í tívolí í Árósum. Þar þurfi einungis að vera fjórtán ára til að mega koma inn án þess að vera í fylgd með fullorðnum á meðan aldurinn í Tívolí í Kaupmannahöfn séu sextán ár. Áfengisaldur í Danmörku er einmitt sextán ár, annað en á Íslandi þar sem hann er tuttugu ár. Ríkisútvarpið segir ungmennin láta öllum illum látum, þau hafi ælt í strætóskýli, skilið eftir tómar flöskur í görðum grunlausra íbúa og skilið eftir brotnar glerflöskur á víðavangi. Nú hefur danska lögreglan biðlað til foreldra barnanna um að stíga upp og bera ábyrgð á börnum sínum. Útvarpið hefur eftir Rasmund Houmann lögreglufulltrúa að vandamálið nú sé umfangsmeira en áður, fleiri tilvik og það algengara að lögregla þurfi að aðstoða dauðadrukkin börn til síns heima. Þá ræðir danska ríkisútvarpið við Henrik Ragborg Olesen framkvæmdastjóra tívolísins í Árósum. Hann segist taka undir með lögreglu, hann hafi líka áhyggjur af ástandinu en útvarpið segir að 14 ára aldurstakmark í garðinn fyrir börn sem ekki eru í fylgd með fullorðnum hafi verið innleitt fyrir tveimur árum síðan. „Það er ekki hægt að útiloka það til lengri tíma ða við munum þurfa að breyta því aldurstakmarki. En þetta er ekki eitthvað sem við gerum á miðju sumri, fólk hefur þegar keypt ársmiða á grundvelli þeirra reglna sem eru til staðar,“ segir Olesen. Hann segir garðinn ekki geta borið ábyrgð á því sem fólk hafi drukkið áður en það mæti í garðinn.
Danmörk Áfengi Börn og uppeldi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Sjá meira