Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sindri Sverrisson skrifar 5. júní 2026 14:35 Bræðurnir Ólafur og Jóhann Ólafssynir fögnuðu vel á Sauðárkróki þegar Íslandsmeistaratitillinn var í höfn og Nablinn fékk að taka þátt í gleðinni. Samsett/Sigurður Ingi Pálsson Íslandsmeistarar Grindavíkur munu áfram leika undir stjórn þjálfarans Jóhanns Þórs Ólafssonar á næstu leiktíð. Íslenskir lykilmenn hafa einnig framlengt samninga sína og DeAndre Kane verður áfram með liðinu.
Grindvíkingar tilkynntu um það með glæsilegu myndbandi í dag að samningur við Jóhann þjálfara og fjölda leikmanna hefði verið framlengdur. Jóhann hefur verið aðalþjálfari liðsins frá árinu 2022 og áður á árunum 2015-2019, auk þess að hafa verið aðstoðarþjálfari þegar liðið varð Íslandsmeistari 2013 og bikarmeistari 2014. Hann stýrði liðinu til Íslandsmeistaratitils á ný í vor með 3-1 sigri gegn Tindastóli í úrslitaeinvíginu. Bróðir Jóhanns, Ólafur Ólafsson, hefur framlengt samning sinn við félagið til tveggja ára. Ólafur, sem missti af lokaleik tímabilsins vegna ristarbrots, verður 36 ára í nóvember en er hvergi nærri hættur og skrifaði undir samning til næstu tveggja ára. Ólafur Ólafsson smellir kossi á bikarinn. Hann ætlar að spila áfram næstu tvö árin.mynd/Sigurður Ingi Pálsson Kristófer Breki Gylfason skrifaði einnig undir samning til næstu tveggja ára og þeir Ragnar Örn Bragason og Arnór Tristan Helgason verða sömuleiðis áfram með Grindvíkingum. Áður var ljóst að DeAndre Kane yrði áfram með Grindavík á næstu leiktíð. Hann var handtekinn við komuna heim til Pittsburgh fyrir viku síðan, vegna meðlagsskuldar frá árinu 2023, en sleppt fljótt og reikna Grindvíkingar ekki með að málið hafi nein áhrif á að hann spili í Bónus-deildinni á næstu leiktíð. Jeremy Pargo, fertuga hetjan frá lokaleiknum á Sauðárkróki þegar Grindavík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn, verður hins vegar ekki með Grindvíkingum nema eitthvað mikið breytist. Leit stendur yfir að bandarískum leikmanni. DeAndre Kane og Kristófer Breki Gylfason verða áfram með Grindavík en óvissa ríkir um Daniel Mortensen.mynd/Sigurður Ingi Pálsson Óvissa ríkir svo um Jordan Semple og Daniel Mortensen en samkvæmt upplýsingum Vísis er verið að vinna í þeirra málum og ekki útilokað að báðir verði áfram í herbúðum Grindavíkur.
UMF Grindavík Bónus-deild karla Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn „Mér fannst við ekki góðir“ Íslenski boltinn Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn Íslenski boltinn Oliver til FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Sjá meira