„Ó, mér líður svo vel“ Bjarki Sigurðsson skrifar 3. júní 2026 19:58 Margrét Pála Ólafsdóttir ávarpaði viðstadda áður en hún reif í gítarinn. Reitir Hjallastefnan og Reitir reisa fjögur hundruð barna grunn- og leikskóla á Nauthólsvegi á næstu árum. Stofnandi Hjallastefnunnar segir dásamlegt að árlegur húsnæðiskvíði hverfi nú.
Það var mikil ánægja í loftinu þegar tilkynnt var í dag að í nýjum lífsgæðakjarna Reita við Nauthólsveg yrði byggður leik- og grunnskóli Hjallastefnunnar fyrir fjögur hundruð börn. „Ó, mér líður svo vel. Mér líður svo dásamlega. Við erum búin að vera lengi að þróa leik- og grunnskólastarf hér í Öskjuhlíðinni og verið í húsnæðishraki á meðan,“ segir Margrét Pála Ólafsdóttir, stofnandi Hjallastefnunnar. Vill ekki of stóran skóla Þetta verður eins konar skólaþorp. „Ég trúi ekki á of stóra skóla. En nálægð og samvinna er nokkuð sem ég trúi á,“ segir Margrét Pála. Margrét Pála Ólafsdóttir var himinlifandi. Vísir/Lýður Valberg „Það er búið að vera mikil óvissa í langan tíma. Þannig þetta eru frábærar fréttir. Við erum mjög spenntar,“ segir Linda Björk Sigmundsdóttir, skólastýra Barnaskólans í Reykjavík. „Já, það verður bara frábært að fá framtíðarhúsnæði fyrir börn og fjölskyldur. Eyða þessari óvissu sem hefur verið undanfarin ár,“ segir Guðrún Silja Steinarsdóttir, leikskólastýra Öskju. Reitir byggja skólann og leigja Hjallastefnunni „Rannsóknir sýna okkur að þar sem eru svæði sem tengja saman íbúa af öllum aldursstigum eru svæði með aukna vellíðan og félagslega virkni,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita. Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita, skrifaði undir viljayfirlýsingu. Vísir/Lýður Valberg Nú tekur við deiliskipulagsvinna en nokkur ár eru í að skólaþorpið verði fullbúið. „Hér erum við að fá að borðinu einkaaðila sem ætla að koma að byggja leik- og grunnskóla fyrir Hjallastefnuna, sem er eitthvað sem við viljum sjá meira af. Að baki Hjallastefnunni hafa verið ótrúlegir eldhugar sem hafa sýnt mikla þrautseigju í gegnum árin, í gegnum alla þessa húsnæðiskrísu. Þannig þetta er mikil gleðistund hérna í dag,“ segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri var viðstödd. Vísir/Lýður Valberg Gleðistundinni lauk með fallegum söng sem sjá má í klippunni hér fyrir neðan.
Skóla- og menntamál Reykjavík Leikskólar Grunnskólar Tengdar fréttir Hjallastefnan fær loksins húsnæði Hjallastefnan stefnir á að opna nýjan leik- og grunnskóla fyrir fjögur hundruð börn við Nauthólsveg í Reykjavík. Kennt verður upp í sjöunda bekk á grunnskólastigi. Skólinn mun taka við af núverandi starfsemi Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um mitt ár 2027. 3. júní 2026 12:58 Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Barnaskólinn í Hafnarfirði, Hjallastefnuskólinn, hefur ákveðið að leggja niður 4. bekk skólans frá og með næsta skólaári og mun því aðeins vera fyrir börn í fyrsta til þriðja bekk. Foreldrar hafa verið boðaðir til fundar vegna málsins á mánudag. Hafnarfirði var tilkynnt um breytinguna fyrir mánuði síðan. 21. mars 2026 22:33 Óboðlegt að borgin haldi foreldrum í óvissu lengur Foreldrar skóla- og leikskólabarna Hjallastefnunnar í Reykjavík munu á morgun koma saman í ráðhúsi Reykjavíkur til að mótmæla þeirri óvissu sem enn stendur um framtíð skólastarfsins í Reykjavík. Núverandi húsnæði skólans er sprungið og hefur skólinn beðið svara frá borginni um staðsetningu fyrir framtíðarhúsnæði um árabil. 26. mars 2025 21:01 Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Sjá meira
Hjallastefnan fær loksins húsnæði Hjallastefnan stefnir á að opna nýjan leik- og grunnskóla fyrir fjögur hundruð börn við Nauthólsveg í Reykjavík. Kennt verður upp í sjöunda bekk á grunnskólastigi. Skólinn mun taka við af núverandi starfsemi Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um mitt ár 2027. 3. júní 2026 12:58
Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Barnaskólinn í Hafnarfirði, Hjallastefnuskólinn, hefur ákveðið að leggja niður 4. bekk skólans frá og með næsta skólaári og mun því aðeins vera fyrir börn í fyrsta til þriðja bekk. Foreldrar hafa verið boðaðir til fundar vegna málsins á mánudag. Hafnarfirði var tilkynnt um breytinguna fyrir mánuði síðan. 21. mars 2026 22:33
Óboðlegt að borgin haldi foreldrum í óvissu lengur Foreldrar skóla- og leikskólabarna Hjallastefnunnar í Reykjavík munu á morgun koma saman í ráðhúsi Reykjavíkur til að mótmæla þeirri óvissu sem enn stendur um framtíð skólastarfsins í Reykjavík. Núverandi húsnæði skólans er sprungið og hefur skólinn beðið svara frá borginni um staðsetningu fyrir framtíðarhúsnæði um árabil. 26. mars 2025 21:01