Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar 2. júní 2026 15:03 Þegar milljörðum af skattfé almennings er varið til læknismeðferða erlendis vaknar einföld en mikilvæg spurning. Var fyrst kannað hvort sambærileg þjónusta væri í boði hér á landi? Í fjárlögum ársins 2026 er gert ráð fyrir um 3,4 milljörðum króna til læknismeðferða erlendis. Það er veruleg fjárhæð sem kallar á skýrar reglur, faglegt mat og ábyrga stjórnsýslu. Í mörgum tilvikum er meðferð erlendis brýn og nauðsynleg. Ísland er lítið land og það er hvorki raunhæft né skynsamlegt að allar sérhæfðar læknismeðferðir séu veittar innanlands. Hér er því ekki verið að draga í efa rétt sjúklinga til nauðsynlegrar meðferðar erlendis þegar hún er besta eða eina raunhæfa úrræðið. Spurningin snýst frekar um það hvort við nýtum jafnframt öll tækifæri til að byggja upp og nýta þjónustu hér heima þegar það er mögulegt. Orð ráðherra Í umræðum á Alþingi 1. júní sl. tók heilbrigðisráðherra skýrt til orða um þetta mál. Hún sagði að ekki væri hægt að greiða fyrir aðgerðir hérlendis utan samninga og að slíkt myndi kollvarpa núverandi skipulagi heilbrigðisþjónustunnar. Hún lauk máli sínu síðan á þeim orðum að það væri annað hvort merki um vanþekkingu eða popúlisma að halda öðru fram, nema hvoru tveggja væri. Þetta eru þung orð í umræðu um mikilvægt mál. Ekki síst þegar þau sjónarmið sem hér um ræðir endurspeglast að í umsögnum fagaðila um máli. Það er ekki popúlismi að spyrja hvort ríkið kanni ávallt fyrst hvort hægt sé að veita sjúklingi sambærilega þjónustu hér heima. Það er einfaldlega krafa um vandaða stjórnsýslu. Áður en einstaklingur er sendur í meðferð erlendis ætti að vera sjálfsagt að ganga úr skugga um hvort sambærileg þjónusta sé í boði hér á landi eða ekki. Slík athugun snýst ekki aðeins um kostnað heldur einnig um hagsmuni sjúklinga, ábyrgð gagnvart skattgreiðendum og það hvernig við viljum byggja upp íslenskt heilbrigðiskerfi til framtíðar. Breytingartillagan sem var felld Þetta var kjarninn í breytingartillögu sem ég lagði fram við frumvarp um sjúkratryggingar nú á vorþingi. Tillagan fól í sér að áður en greiðsluþátttaka vegna meðferðar erlendis kæmi til þyrfti að liggja fyrir skráð og sannanlegt mat á því hvort sambærileg þjónusta væri í boði hér á landi. Þar væri meðal annars horft til þjónustu sjálfstætt starfandi sérfræðinga og annarra sem starfa samkvæmt samningum við Sjúkratryggingar Íslands. Vitanlega yrði slíkt mat að taka tillit til heilsufarsástands sjúklings, þróunar sjúkdóms, gæði og biðtíma eftir þjónustu. Tillögunni var hafnað. Það vekur spurningar, ekki síst í ljósi þess að þingmenn Viðreisnar höfðu áður lagt fram sambærilegar tillögur þegar flokkurinn var í stjórnarandstöðu. Nú, þegar flokkurinn situr í ríkisstjórn, er tillögu sama efnis hafnað. Það gefur tilefni til að spyrja hvort afstaða til mála ráðist um of af því hvort flokkur sitji í ríkisstjórn eða stjórnarandstöðu. Íþyngjandi ferðalög og fjarvera Fyrir marga sjúklinga er meðferð erlendis verulega íþyngjandi. Hún getur kallað á löng ferðalög, fjarveru frá fjölskyldu og aukinn kostnað. Fyrir einstakling sem glímir við alvarleg veikindi skiptir ekki aðeins máli hvaða meðferð er veitt heldur einnig hvar hún fer fram. Að fá meðferð sem næst heimili sínu getur skipt sköpum fyrir lífsgæði fólks. Á Íslandi starfar fjöldi sérfræðinga sem hefur byggt upp mikilvæga þekkingu og reynslu. Ef sambærileg meðferð er í boði hér heima innan ásættanlegs tíma er eðlilegt að spyrja hvers vegna kerfið nýti ekki þá getu áður en gripið er til þess úrræðis að senda sjúklinga úr landi. Við getum ekki annars vegar talað um mikilvægi þess að efla innlenda heilbrigðisþjónustu og hins vegar hafnað því að kanna með sannanlegum hætti hvort hún sé fyrir hendi þegar á reynir. Skyldan til að kanna fyrst innlenda möguleika á meðferð er eðlilegur hluti af ábyrgri stjórnsýslu, þjónustumiðaðri nálgun gagnvart sjúklingum og skynsamlegri nýtingu opinbers fjár. Hún styrkir innlenda þekkingu, getur dregið úr óþarfa ferðalögum og tryggir að ákvarðanir um meðferð erlendis séu teknar á skýrum og faglegum grundvelli. Erfitt er að skilja hvernig slíkt fyrirkomulag getur verið umdeilt. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Ólöf Isaksen Heilbrigðismál Mest lesið Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar