Sektaður um átta milljónir fyrir karlrembu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 15:32 Adolfo Daniel Vallejo var mjög pirraður vegna hávaðans frá frönskum áhorfendum. Getty/Burak Akbulut Paragvæskur tennisleikari fékk stóra sekt fyrir kynferðisleg ummæli um dómara á Opna franska meistaramótinu í tennis.
Adolfo Daniel Vallejo var sektaður um 65 þúsund Bandaríkjadali eftir að hafa sagt að kona hefði ekki átt að dæma leik hans í annarri umferð. Skipuleggjendur franska meistaramótsins tilkynntu þetta. Vallejo tapaði fyrir franska táningnum Moise Kouame í síðustu viku eftir spennandi fimm setta viðureign sem stóð í tæpar fimm klukkustundir. Hann sagði síðar við tennisvefsíðuna Clay að „svona leik þurfi karlmaður að dæma“. Mjög erfitt fyrir konu Eftir tap sitt bætti Vallejo við: „Það er mjög erfitt fyrir konu að gera það.“ 🎾 Après ses propos sexistes contre l'arbitre de son match face à Kouame, Adolfo Daniel Vallejo écope d'une amende de 65.000 euros, soit la moitié de son prize-money Porte d'Auteuil.https://t.co/w6rLPE84u7— RMC Sport (@RMCsport) June 1, 2026 Keppendur sem komast í aðra umferð á Opna franska fá 130 þúsund evrur í verðlaunafé eða 18,8 milljónir íslenskra króna. Amelie Mauresmo, mótstjóri Roland Garros, sagði fréttamönnum á Opna franska að leikmaðurinn hefði verið sektaður um 65.000 evrur, „sem er um það bil helmingur af verðlaunafé hans“. Skipuleggjendur skýrðu síðar frá því að sektin væri í dollurum en ekki evrum. Augljóslega óásættanlegt „Þetta er augljóslega óásættanlegt. Enn og aftur eiga slík ummæli engan stað hér,“ sagði Mauresmo. Vallejo, frá Paragvæ, sagði að dómarinn, Ana Carvalho frá Brasilíu, hefði ekki náð stjórn á áhorfendum. „Það þarf karlmann til að dæma þetta, því þetta er mjög krefjandi áhorfendahópur og það þarf mikinn styrk til að fara gegn honum,“ sagði hann. Frekar ákafur áhorfendahópur „Áhorfendur voru mjög óviðeigandi en ég skil að þeir styðji samlanda sinn. Þetta er frekar ákafur áhorfendahópur og þess vegna var ég viðbúinn; ég vissi nú þegar að þetta yrði svona og, satt að segja, skaðaði það mig ekki, heldur styrkti það hann,“ sagði Vallejo. French Open Sexism Storm: Player Says Women Can’t Control Crowds The French Open has been rocked by a sexism controversy after Adolfo Daniel Vallejo suggested that women lack the courage to officiate hostile crowds following his defeat to Moise Kouame @rupharamani pic.twitter.com/MKsSFaMeSc— Firstpost (@firstpost) June 1, 2026 Vallejo bætti við að Kouame hefði „tekið sér mikinn tíma í mörgum tilfellum, legið á gólfinu eða tafið leikinn.“ „Það er ekki eðlilegt að áhorfendur séu að hrópa í heila mínútu án þess að leikið sé. Í leik þar sem líkamlegi þátturinn skiptir svo miklu máli, ef þú gefur leikmanni mikinn tíma, mun hann augljóslega nýta sér það. Sannleikurinn er sá að það er líka erfitt fyrir dómara að stjórna þessum aðstæðum,“ sagði Vallejo.
Tennis Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Stóru liðin á eftir Kroupi Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Þurfti að flauta leikinn tvisvar af 303 mörk í 500 leikjum fyrir eitt félag Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Sektaður um átta milljónir fyrir karlrembu Er hægt að stöðva Víkingana? Serena snýr aftur á tennisvöllinn Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet „Ef afi minn væri með hjól þá væri hann bíll“ Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Keegan með fjórða stigs krabbamein United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Gafst aldrei upp þrátt fyrir áfallið en komst ekki á heimsleikana Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Ancelotti tekur við liði Hákons í fjarvinnu Freyr rekinn frá Brann Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Hættir með vefinn sinn Handbolti.is HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Milner hættur í fótbolta Gefa heila goðsagnarinnar til rannsókna Gerði óþekktan leikmann heimsfrægan Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sjá meira