Gervigreindarkapphlaup sem Norðurlöndin geta unnið Halldóra Mogensen og Kristinn R. Þórisson skrifa 1. júní 2026 07:30 Spjallmenni eins og ChatGPT, Claude og Gemini skrifa texta, svara spurningum og leysa ýmis verkefni af undraverðri fimi. Myndgerðarforrit búa til sannfærandi myndir á sekúndum og ný gervigreindarverkfæri birtast nánast daglega. Flestir telja að þessi samtímagervigreind verði sífellt hæfari og traustari með hverri nýrri útgáfu. Margir gerast „gervigreindartrúboðar”, aðrir dómsdagsspámenn, og sumir ganga jafnvel svo langt að halda því fram að hún sé á góðri leið með að jafnast á við eða fara fram úr mannlegri greind. Af hverju bullar Chatti? Traust okkar til vöru og þjónustu byggir á áreiðanleika, fyrirsjáanleika og gagnsæi. Það er eðlileg krafa að tækni sem á að innleiða í fjölmörg kerfi samfélagsins sé útskýranleg, endurskoðanleg og hönnuð þannig að hægt sé að rekja og lagfæra mistök. Flestir gera ráð fyrir að gervigreind verði smám saman traustari eftir því sem hún þróast, en sú trú byggir á því að núverandi annmarkar séu tímabundnir, frekar en innbyggðir í tæknina. Raunin er sú að aðferðafræði djúptauganeta lýtur lögmálum sem gera þau í eðli sínu ógagnsæ, óútreiknanleg, og óáreiðanleg. Gervigreindin sem við notum í dag er ekki fær um skilning. Hún spáir fyrir um mynstur en ekki merkingu. Það er ómögulegt að útskýra niðurstöðurnar því þjálfunargögnin eru blönduð saman í talnasúpu án aðgreinanlegra hluta. Þegar líkanið skilar rangri niðurstöðu er því engin leið að finna þann hluta sem ber ábyrgð og laga hann. Gervigreindin fangar fylgni en ekki orsök, sem útilokar raunverulega rökhugsun og þegar líkön hafa verið þjálfuð eru þau frosin, ófær um að læra af reynslunni. Svo geta þau ekki staðfest eigin niðurstöður sem gerir úttektir og eftirlit erfitt. Njósnir, upplýsingaóreiða og stuldur Það sem gervigreind nútímans gerir aftur á móti mjög vel er að stórauka og efla eftirlitsgetu, magna upp upplýsingaóreiðu, fjarstýra okkur, og ryksuga upp verk milljóna rithöfunda, listamanna og fræðimanna og selja okkur verkin svo aftur án þess að greiða krónu til fólksins sem skapaði þau. Við þetta má bæta samþjöppun valds og miðstýringu sem ætti að vera áhyggjuefni fyrir öll lýðræðissamfélög. Gervigreindin færir tölvuvinnslu inn í risavaxin miðlæg gagnaver í eigu örfárra aðila, sem gerir okkur öll að leigjendum frekar en eigendum. Er þá líklegt að þessi tækni sé alveg við það að taka framúr mannshuganum? Þrátt fyrir yfirlýsingar tæknirisa um að alhliða gervigreind muni líta dagsins ljós á næstu misserum – vélvit sem jafnast á við mannlega greind – stýrist starfsemi djúptauganeta af einföldum tölfræðilegum reglum sem eru engan vegin færar um hugsun eins og við þekkjum hjá hvort öðru, svo sem skipulagða áætlanagerð eða röksemdarfærslur. Samtímagervigreind er ekki gædd skynsemi. Hún er vél sem alin er á gögnum sem manneskjur bjuggu til. Betri gervigreind Raunverulega gervigreindarbyltingin (þessi sem færir okkur inn í útópíuna frekar en dystópíuna) mun ekki spretta frá núverandi líkönum, því þau eru frosin og takmarkað hægt að bæta. Byltingin mun koma með þróun nýrrar gervigreindar. Gervigreind sem gefur niðurstöður sem hægt er að útskýra, sem keyrir á litlu magni gagna í stað alls Internetsins, sem lærir af reynslunni, og passar á fartölvu. Slík gervigreind myndi færa valdið aftur til notenda, eftirlitsaðila og smærri landa. Hana væri hægt að keyra á innlendum vélbúnaði, með innlendri gagnageymslu, og í samræmi við lög landsins. Spurningin sem situr eftir er: Eigum við að halda áfram að dæla peningum í gervigreind sem er bókstaflega ófær um að verða örugg og traust, eða eigum við að fjármagna grunnrannsóknir sem skapa eitthvað betra? Seinni valkosturinn býður upp á tækifæri fyrir Norðurlöndin til að vera í fararbroddi. Smáþjóðir geta nefnilega ekki unnið ofurgagnakapphlaupið; við verðum aldrei samkeppnishæf á þeim vettvangi. En það er í lagi, því það kapphlaup er ekki eina hlaupið sem hægt er að taka þátt í þegar kemur að gervigreind. Kapphlaupið sem við getum tekið þátt í – og unnið Þegar Afríkuríki drógust aftur úr umheiminum í fjarskiptainnviðum slepptu þau áframhaldandi uppbyggingu rándýrra landlínuinnviða og stukku þess í stað beint yfir í farsíma. Norðurlöndin geta gert það sama með gervigreind og stigið úr núverandi kapphlaupi og sett þess í stað fókus og fjármagn í næstu tegund gervigreindar. Vísindin eru komin langt á leið með slíka tækni í rannsóknarstofum víðsvegar um Evrópu. Það sem vantar er fjármögnun, samhæfingu og pólitískan vilja til að styðja við þróunina. Sýnum hugrekki og framsýni – tökum leiðandi stöðu í þróun og innleiðingu gervigreindar sem fólk getur skilið, treyst og haft stjórn á. Þessum hugmyndum er lýst nánar í greininni Better Machine Intelligence – A Vision for Nordic AI Leadership sem Vitvélastofnun Íslands gaf út í síðustu viku. Kristinn er prófessor í tölvunarfræði og stjórnandi Vitvélastofnunar Íslands og Halldóra er stofnmeðlimur Samtaka um mannvæna tækni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Halldóra Mogensen Gervigreind Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar