Kaupa Sóma og Þykkvabæ Freyja Þórisdóttir skrifar 29. maí 2026 18:23 Sómi er til húsa í Gilsbúð í Garðabæ. Skjáskot/ja.is Eitt þekktasta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins, Sómi ehf., hefur verið selt til nýrra eigenda. Þá ná kaupin einnig til dótturfélagsins Þykkvabæjar ehf. en það er Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., sem hefur nú undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma.
Þessu er greint frá í tilkynningu en þar kemur einnig fram að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Seljendur eru þeir Arnþór Pálsson og Sigurður Ólafsson sem hafa leitt félagið á undanförnum árum. Innherji hafði áður greint frá því í lok síðasta mánaðar að framtakssjóður Stefnis væri að vinna í því að ganga frá kaupum á samlokurisanum. Arnþór mun láta af störfum við eigendaskiptin en Sigurður mun starfa áfram sem framkvæmdastjóri félagsins. Hann segir fyrirtækið hafa vaxið jafnt og þétt og að það sé fyrst og fremst „okkar frábæra starfsfólki og tryggum viðskiptavinum að þakka“. Engar áhyggjur af framtíð fyrirtækisins Þá segist hann spenntur fyrir framhaldinu og hafa fulla trú á því að nýir eigendur geti stutt vel við fyrirtækið. „Ég tel að nú sé réttur tímapunktur fyrir nýja aðila að taka við eignarhaldi Sóma og leiða félagið í gegnum næsta vaxtarskeið. SÍA V hefur bæði burði og framtíðarsýn til að styðja vel við bakið á Sóma og ég hlakka til að fylgjast með framtíðarvegferð fyrirtækisins“. Sómi, Júmbó og Þykkvabæjar hafa um áratugaskeið verið meðal stærstu vörumerkja á íslenskum neytendamarkaði. Samstæðan framleiðir fjölbreytt úrval af samlokum, vefjum, salötum og öðrum tilbúnum réttum sem seldir eru í verslunum, bensínstöðvum og á sölustöðum um allt land. Mikill vöxtur á markaðnum Í tilkynningu segir að með kaupunum standi til að styrkja enn frekar innviði félaganna, styðja við frekari vöruþróun og mæta vaxandi kröfum neytenda um gæði og ferskleika í takt við breytta lífshætti. Ólöf Pétursdóttir, sjóðstjóri hjá Stefni, segir fyrir hönd SÍA V að þau séu virkilega hreykin af því að vera að taka við keflinu hjá Sóma og spennt fyrir komandi verkefnum. „Fyrirtækið á sér einstaka sögu og býr yfir sterkum vörumerkjum sem landsmenn þekkja og treysta. Markaðurinn fyrir tilbúna rétti og fljótlegar, hollar lausnir þegar kemur að mat er í miklum vexti og við sjáum mörg tækifæri til að byggja ofan á þann flotta grunn sem núverandi eigendur hafa skapað,“ segir hún jafnframt og bætir við að þau hlakki til að „vinna með samhentu starfsfólki Sóma og Þykkvabæjar að áframhaldandi framþróun félagsins“.
Kaup og sala fyrirtækja Matur Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira